Menningarstyrkir 2019 – fyrri úthlutun
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar hefur nú lokið fyrri úthlutun menningarstyrkja ársins 2019. 22 verkefni hljóta styrk að þessu sinni. Formleg afhending fer fram 24. apríl um leið og tilkynnt verður um val á bæjarlistamanni ársins 2019.
Menningar-
og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar hefur nú lokið fyrri úthlutun menningarstyrkja
ársins 2019. 22 verkefni hljóta styrk að þessu sinni; einstaklingar,
menningarhópar og samtök sem eiga öll það sammerkt að tengjast Hafnarfirði.
Styrkir menningar- og ferðamálanefndar Hafnarfjarðarbæjar eru afhentir tvisvar
sinnum á ári til aðila og verkefna sem líkleg eru til að auðga og dýpka enn
frekar listalíf bæjarins. Formleg afhending styrkjanna fer fram 24. apríl
næstkomandi um leið og tilkynnt verður um val á bæjarlistamanni ársins 2019.
Úthlutun
styrkja Hafnarfjarðarbæjar byggir á mati á umsóknum. Menningarviðburðir,
listamenn, félagasamtök eða stofnanir sem sækja um styrk verða að tengjast
Hafnarfirði með einhverjum hætti. Hér telur t.a.m. föst búseta, að
viðburður/verkefni fari fram í Hafnarfirði og/eða að verkefni feli í sér
kynningu á menningarstarfsemi Hafnarfjarðar. Heildarupphæð styrkja í þessari
úthlutun er kr.- 6.080.000. Samtals verður úthlutað 11.000.000 kr í formi
menningarstyrkja á árinu 2019.
Að
þessu sinni leggur menningar- og ferðamálanefnd til að gerðir verði
samstarfssamningar til þriggja ára við tvo aðila, þeir samningar verða lagðir
fyrir bæjarráð til samþykktar.
Auglýst
verður eftir umsóknum fyrir síðari úthlutun ársins 2019 í ágúst.
Hafnarfjörður Municipality
óskar styrkþegum öllum innilega til hamingju!
| Málsnúmer | Nafn umsækjanda | Nafn verkefnis | Úthlutað 27.02.2019 | Samstarfssamningur |
| 1901520 | Guðrún Anna Magnúsdóttir | Vortónleikar hjá Kvennakórnum Rósir | 210.000 | |
| 1901522 | Þórður H Hilmarsson | Konudagstónleikar karlakórsins Þrasta | 140.000 | |
| 1901523 | Þórður H Hilmarsson | Vortónleikar karlakórsins Þrasta | 140.000 | |
| 1902328 | Tryggvi Rafnsson | Hafnfirðingurinn – Hlaðvarp | 245.000 | |
| 1902330 | Association of Senior Citizens in Hafnarfjörður | Kóramót Gaflarakórsins í Hafnarfirði | 350.000 | |
| 1902331 | Ólafur B Ólafsson | Er völlur grær | 190.000 | |
| 1902332 | Hulda Björnsdóttir | Vortónleikar Kvennakórs Hafnarfjarðar | 250.000 | |
| 1902353 | Svanhvít Erla Traustadóttir | Flensborgarkórinn ásamt Hallveigu Rúnarsdóttur | 210.000 | |
| 1902354 | Ragnar Már Jónsson | Sumardjass víða um Hafnarfjarðarbæ | 100.000 | |
| 1902373 | Stefán Örn Gunnlaugsson | BYR – tónleikar | 260.000 | |
| 1902375 | Eyrún Ósk Jónsdóttir | Einleikur – Requiem | 210.000 | |
| 1902378 | Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir | Singing Festival at Hafnarborg | 800.000 | Árlega í 3 ár |
| 1902381 | Ásbjörg Jónsdóttir | Tónleikar sönghópsins IMPRU í Hafnarborg | 140.000 | |
| 1902382 | Benjamín Sigurgeirsson | Vegan Festival 2019 | 140.000 | |
| 1902383 | Finnbogi Óskarsson | Lúðrasveit Hafnarfjarðar – tónleikar á árinu 2019 | 600.000 | Árlega í 3 ár |
| 1902384 | Henný María Frímannsdóttir | Heima – tónlistarhátíð | 700.000 | |
| 1902385 | Erlendur Sveinsson | Sveinssafn – sýningarstarfsemi | 500.000 | |
| 1902387 | Vilhjálmur Þór Sigurjónsson | Tónlistarferðalag Barbörukórsins | 250.000 | |
| 1902388 | Gyða Kristmannsdóttir | Fjölmenningarhátíð í Norðurbæ Hafnarfjarðar | 200.000 | |
| 1902389 | Helga Björg Arnardóttir | Einleikstónleikar – Klarínettan í brennidepli | 70.000 | |
| 1902390 | Christian Schultze | Maíhátíð 2019 | 75.000 | |
| 1902334 | Guðmundur Sigurðsson | Adagio – verk Bachs fyrir orgel og selló | 300.000 | |
| Úthlutað alls: | 6.080.000 |