Forvarnaverkefnið Build kynning.
Education Council
in Krosseyri, 3 Linnetsstíg
Present at the meeting
- Kristín María Thoroddsen Chairman
- Margret Vala Marteinsdottir Vice-chairman
- Godbjörg Oddný Jónasdóttir main person
- Sigríður Ólafsdóttir main person
- Birgir Örn Guðjónsson main person
- Auðbjörg Ólafsdóttir Audience representative
- Hólmfríður Þórisdóttir Audience representative
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Hrund Apríl Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður sviðsstjóra, Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla, Anna Sigríður Þorsteinsdóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Særún Þorláksdóttir, varaáheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Aldís Dröfn Stefánsdóttir, varaáheyrnarfulltrúi starfsfólks leikskóla, Kristín Ragnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna og Margrét Thelma Líndal áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.
Secretary
- Valgerður Sveinbjörnsdóttir secretary
Auk ofantalinna og undirritaðra sátu fundinn: Hrund Apríl Guðmundsdóttir, aðstoðarmaður sviðsstjóra, Geir Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Vigfús Hallgrímsson, þróunarfulltrúi grunnskóla, Jenný Dagbjört Gunnarsdóttir, þróunarfulltrúi leikskóla, Anna Sigríður Þorsteinsdóttir, áheyrnarfulltrúi grunnskólakennara, Særún Þorláksdóttir, varaáheyrnarfulltrúi leikskólastjóra, Aldís Dröfn Stefánsdóttir, varaáheyrnarfulltrúi starfsfólks leikskóla, Kristín Ragnarsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra grunnskólabarna og Margrét Thelma Líndal áheyrnarfulltrúi foreldra leikskólabarna.
-
General presentations
-
2101580 – Forvarnaverkefni, Build, samstarfsverkefni með Pietasamtökunum
Fræðsluráð þakkar Stellu B. Kristinsdóttur fyrir kynninguna. Fræðsluráð leggur áherslu á mikilvægi þessa samstarfs milli Pieta samtakanna og Hafnarfjarðarbæjar. Með þessu verkefni erum við að samþætta verkefni sem snúa að forvörnum og snemmtækri hlutun og auka þrautsegju sem nýtist öllum börnum í 8. bekk í Hafnarfirði. Deildarstjórar tómstundamiðstöðva, sálfræðingum og náms- og starfsráðgjöfum er þökkuð vinna við innleiðingu og kennslu.
-
2201751 – Skóladagatal 2022-2023 leikskólar
Skóladagatöl hvers leikskóla fyrir sig í Hafnarfirði lögð fram til samþykktar
Samþykkt.
-
2201750 – Skóladagatal 2022-2023 grunnskólar
Skóladagatöl hvers grunnskóla fyrir sig í Hafnarfirði lögð fram til samþykktar.
Samþykkt.
-
2011221 – Engidalsskóli stækkun
Á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðar þann 30. mars 2022 var eftirfarandi tekið fyrir og afgreiðsla þess var:
Lagt fram kostnaðarmat.Lagt fram og vísað til fræðsluráðs.
Fræðsluráð samþykkir fyrirliggjandi verkþætti og kostnaðarmat.
-
2203796 – Dagforeldri, starfsleyfi
Lagt fram bréf um endurnýjað starfsleyfi til daggæslu í heimahúsi fyrir Ragnheiði Jónsdóttur.
Samþykkt.
-
2203795 – Dagforeldri, starfsleyfi
Lagt fram bréf um endurnýjað starfsleyfi til daggæslu í heimahúsi fyrir Magnús Karl Daníelsson.
Samþykkt.
-
2204112 – Skólalóð Hraunvallaskóla
Lagt fram bréf frá skólastjóra Hraunvallaskóla þar sem óskað er eftir flutningi „Glæsivalla“ af skólalóð skólans.
Fræðsluráð samþykkir ósk Hraunvallaskóla um að flytja tvær lausar skólastofur af skólalóð til að koma fyrir körfuboltavelli aftur á skólalóð Hraunvallaskóla. Fræðsluráð vísar erindinu til umhverfis- og skipulagsráðs.
-
2203377 – Hlutfall kennaramenntaðra og leiðbeinenda, Miðflokkurinn fyrirspurn
Lagt fram svar við fyrirspurn.
Submitted.
Fulltrúi Miðflokksins lagði fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins þakkar skjót svör við fyrirspurninni.
Ljóst er að talsvert mikið vantar uppá að hægt sé að uppfylla lagaákvæði um mönnun fagmenntaðra starfsmanna leikskólanna. Þörf er á stórátaki til að leiðrétta þessa stöðu sem er óásættanleg og í bága við lög. -
2203376 – Langtímaveikindi, Miðflokkurinn fyrirspurn
Lagt fram svar við fyrirspurn.
Submitted.
Fulltrúi Miðflokksins lagði fram eftirfarandi bókun:
Fulltrúi Miðflokksins þakkar skjót svör frá mannauðssviði.
Leggjast þarf í greiningu á því hvers vegna svo hátt hlutfall starfsmanna leik- og grunnskóla eru frá vinnu til lengri tíma vegna veikinda og hvort eitthvað í vinnuumhverfi þessara starfsmanna orsakar eða hefur áhrif á langtímaveikindi starfsmanna.
Menntastofnanir bæjarins eru mikilvægustu vinnustaðir samfélagsins og það þarf að gera allt sem hægt er til að öllum starfsmönnum líði vel í vinnunni. -
2111458 – Frístundastyrkur
Breyting á reglum.
Fræðsluráð leggur til breytingu á notkun frístundastyrks yfir sumarmánuði.
Barn sem nýtir ekki frístundastyrk yfir sumarmánuðina júní, júlí og ágúst getur nýtt mánaðarlega styrkupphæð hvers mánaðar í sumarnámskeið sem er samtals í átta daga eða lengur á mánuði. Tímalengd námskeiðs skal koma fram í reikningi. Ekki er hægt að flytja styrk á milli mánuða. -
2001456 – Budget of the Municipality of Hafnarfjörður and its enterprises 2021 and 2022-2024
Kynnt ársuppgjör mennta- og lýðheilsusviðs 2021.
Fræðsluráð þakkar Guðmundi Sverrissyni, rekstrarstjóra mennta- og lýðheilsusviðs kynninguna.
-
2204113 – Sumarfrístund 2022
Lagt fram minnisblað um sumarfrístund dags. 22.mars 2022.
Tillaga mennta- og lýðheilsusviðs um breytingar sumarfrístund lögð fram til kynningar og afgreiðslu á næsta fundi fræðsluráðs. Fræðsluráð leggur til að foreldraráð grunnskólabarna kynni sér umrædda tillögu áður en hún hlýtur afgreiðslu í fræðsluráði.
-