Náttúrubarn og kennari af guðs náð

News

Hildur Arna Håkansson er viðmælandi í nýjasta þætti Vitans, hlaðvarpi Hafnarfjarðarbæjar. Hildur Arna er ungur kennari á unglingastigi í Skarðshlíðarskóla sem hefur vakið talsverða athygli fyrir kennsluhætti sína m.a. með notkun spjaldtölva. Hildur Arna þykir ná sérstaklega vel til unglinganna sem hún segir vera mjög áhugasama enda bera mörg verkefni þeirra þess merki. 

HildurArna

Í þessu skemmtilega viðtali fer ekki á milli mála að Hildur Arna er kennari af ástríðu. Hún er náttúrubarn og kennir náttúrufræði. Fyrir slíkan kennara er frábært að starfa í Skarðshlíðarskóla sem er með náttúruna í göngufjarlægð. Hildur hélt að hún vildi vera verkfræðingur en gekk út úr tíma í burðarþolsfræði og fór til námsráðgjafa. Þar voru örlög hennar ráðin, hún hóf kennaranám og sér ekki eftir því. Í þessu viðtali er komið víða við, rætt um kennslu og upplýsingatækni, notkun snjalltækja, virkni kennara á Twitter, samfélagsmiðla og börn, aðlögun nemenda af erlendum uppruna og sérstöðu Skarðshlíðarskóla svo fátt sé nefnt. Utan vinnu nýtur Hildur Arna þess að vera úti í náttúrunni (kemur ekki á óvart), stundar kajakróður, ferðalög, er áhugasöm um tungumál og er að afla sér skotvopnaleyfis!

Listen to the programme

Interviews with interesting individuals who work for the municipality.

In Vitanum, interesting individuals who work for the benefit of the town are interviewed. This covers the council's services, interesting development projects, and a wide range of topics. The podcast opens up to a more in-depth discussion of specific projects, services, and issues that are prominent in the current debate. All episodes of The Watcher can be accessed on the Hafnarfjörður town website. as well as on podcast platforms such as Spotify, Simplecast and Podcast Addict. Work is underway to make The Lighthouse available on more platforms.

Suggestion portal