Nýja þjónustuverinu fagnað – Góð vika að baki

News

Nýtt þjónustuver bíður eftir þér á Strandgötu 6-8. Inngangurinn er sameiginlegur með Íslandsbanka á horni Strandgötu og Linnetstígs

Þjónustuverið að Strandgötu 6-8

„Vá, mig hefur bara aldrei dreymt um að þetta yrði svona flott,“ sagði Anna Bára Gunnarsdóttir, deildarstjóri þjónustuversins, við opnun nýja þjónustuvers okkar Hafnfirðinga í síðustu viku. Opið hús var svo á Þjóðhátíðardaginn, einskonar generalprufa. Þjónustuverið opnaði síðan á nýjum stað kl. 8 þann 18. júní.

Valdimar Víðisson bæjarstjóri hélt einnig tölu við opnunina. „Við höfum lengi talað um framtíðarhús og þetta er fyrsti áfanginn í því og það var alveg ljóst að þjónustuverið þyrfti að vera í fyrsta áfanga,“ sagði hann við starfsfólk sem fagnaði nýja þjónustuverinu saman þann 16. júní. „Til hamingju með bætta aðstöðu Anna og þið öll.“

Rúm 20 árum eru síðan bærinn opnaði fyrst þjónustuver. Margt hefur breyst í Hafnarfirði síðan. Íbúum hefur til að mynda fjölgað mikið eða um 52%, úr 20.720 í 31.525.

Play

Þjónustuverið er nú flutt að Strandgötu 8-10 og deilir nú inngangi með Íslandsbanka sem enn er á sínum stað. Inngangurinn er á horni Strandgötu og Linnetstígs.

  • Opnunartími er milli kl. 8-16

Já, þjónustuverið er glæsilegt og komið til að vera á Strandgötu 8-10. Velkomin öll.

Suggestion portal