New contract for the operation and management of the Sörli area
Hafnarfjarðarbær og Hestamannafélagið Sörli skrifuðu nýverið undir samning um umsjón og rekstur á íþróttasvæði og húsnæði félagsins. Samningurinn nær til hluta af rekstri á íþrótta- og útivistarsvæðisvæði Sörla, s.s. skeið- og hlaupabrauta, girðinga, reiðskemmu, félagshestshúss, mannvirkja á svæðinu og bílastæða. Forsendur fyrir framlagi til rekstrar eru byggðar á rauntölum úr rekstri liðinna ára. Samningurinn gildir til 31. desember 2028.
Samningurinn gildir til 31. desember 2028
Hafnarfjörður municipality and The Riding Club Sörli skrifuðu nýverið undir samning um umsjón og rekstur á íþróttasvæði og húsnæði félagsins. Samningurinn nær til hluta af rekstri á íþrótta- og útivistarsvæðisvæði Sörla, s.s. skeið- og hlaupabrauta, girðinga, reiðskemmu, félagshestshúss, mannvirkja á svæðinu og bílastæða. Forsendur fyrir framlagi til rekstrar eru byggðar á rauntölum úr rekstri liðinna ára. Samningurinn gildir til 31. desember 2028. Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Atli Ingólfsson formaður Hestmannafélagsins Sörla skrifuðu undir samninginn í félagshesthúsinu vinsæla í faðmi hesta og barna.
Félagshesthús fyrir 9-18 ára
Hluti af samningi nær til reksturs á félagshesthúsi Sörla sem ætlað er börnum á aldrinum 9-18 ára og felur hlutur Hafnarfjarðarbæjar í sér 50% kostnaðarþátttöku. Markmið félagshesthúss er að auðvelda börnum sem hafa ekki aðgang að hestum og hesthúsi aðgang að íþróttinni. Sörli setur sér verklagsreglur um verkefnið þannig að sem flest börn fái tækifæri á að stunda íþróttina. Skipulagt starf í félagshesthúsi er að lágmarki tvisvar sinnum í viku frá kl. 15 -18, níu mánuði ársins. Einnig geta börn leigt pláss í félagshesthúsi allt árið um kring og sinnt hestunum sínum alla daga ársins. Öll börn geta leitað til umsjónarmanna félagshúss. Hestamannafélagið Sörli auglýsir hið minnsta einu sinni á ári starfsemi félagshesthússins auk þess að hafa á áberandi stað á heimasíðu sinni kynningu um starfið. Sörli mun bjóða upp á opið hús í félagshesthúsi að lágmarki einu sinni á ári og opna þannig á tækifæri barna og ungmenna til að kynnast ævintýraheimi íslenska hestsins. Byrjendum er boðið upp á aðstoð við að stíga sín fyrstu skref undir handleiðslu leiðbeinenda, fara á hestbak, læra undirstöðuatriði við umhirðu og umgengni við hest og fá þannig raunverulega innsýn í hvað í því felst að halda hest. Félagshesthús Sörla er starfrækt við Sörlaskeið 24, í rúmgóðu og mjög hentugu hesthúsi, þar sem einnig er innangengt í litla reiðhöll.
Sörli hlaut Æskulýðsbikar LH haustið 2022
Hin eftirsóttu verðlaun, Æskulýðsbikar Landsþings hestamanna, féllu í skaut Sörla haustið 2022 en verðlaunin eru afhent því félagi sem hefur þótt skara fram úr með æskulýðsstarfi sínu og talið er að skili sér í öflugum hestamönnum til framtíðar. Er hér um að ræða eina þá æðstu viðurkenningu sem hægt er að hljóta fyrir æskulýðsstarf í faginu. Framtíðargrasrót félaganna myndast í unga fólkinu og æskulýðsstarfið því talið eitt mikilvægasta starf hvers félags. Hestamannafélagið Sörli hlaut viðurkenninguna fyrir mjög metnaðarfullt og öflugt starf.