Nýr verkefnastjóri fjölmenningar er kominn til starfa

News

Hildur Ýr Jónsdóttir er nýr verkefnastjóri fjölmenningar hjá Hafnarfjarðarbæ. Hildur Ýr mun bera ábyrgð á starfsemi fjölmenningarmála í sveitarfélaginu, starfa þvert á svið, stofnanir, deildir og verkefni sveitarfélagsins og hafa það hlutverk að efla leiðir og marka nýjar leiðir við móttöku á fólki af erlendum uppruna og hvetja til aukinnar þátttöku þeirra í samfélaginu.

Beislum orkuna og tækifærin sem nýir íbúar færa samfélaginu

Hildur Ýr Jónsdóttir er nýr verkefnastjóri fjölmenningar hjá Hafnarfjarðarbæ. Hildur er mannfræðingur með B.A. í leiklist og M.A. í leikhúsi og sviðslistum. Hún býr yfir víðtækri reynslu af verkefnastjórnun og samfélagsvinnu í fjölmenningarlegu samhengi og hefur meðal annars unnið að stefnumótun, upplýsingamiðlun og menningarviðburðum fyrir innflytjendur og flóttafólk. Hildur hefur leitt ýmiss verkefni sem stuðla að samþættingu, valdeflingu og fjölmenningarlegri þátttöku í samfélaginu. Nú síðast sem verkefnafulltrúi félagslegs stuðnings og félagsstarfs fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd og flóttafólks hjá Rauða krossinum.

„Við tökum fagnandi á móti Hildi og hlökkum til þess að sjá hana taka fjölmenninguna á flug innan sveitarfélagsins. Nú ætlum við að beisla orkuna og tækifærin sem falin eru í fólkinu og kosið hefur Hafnarfjörð sem bæinn sinn,“ segir Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar.

Móttaka íbúa af erlendum uppruna og aukin þátttaka í samfélaginu

Hildur Ýr mun bera ábyrgð á starfsemi fjölmenningarmála í sveitarfélaginu, starfa þvert á svið, stofnanir, deildir og verkefni sveitarfélagsins og hafa það hlutverk að efla leiðir og marka nýjar leiðir við móttöku á fólki af erlendum uppruna og hvetja til aukinnar þátttöku þeirra í samfélaginu. Nýr verkefnastjóri fjölmenningar mun á næstu vikum endurvekja meðal annars fjölmenningaráð Hafnarfjarðar í samstarfi við sviðsstjóra fjölskyldu- og barnamálasviðs. Fjölmenningarráðið hefur það hlutverk að veita bæjarstjórn, nefndum og ráðum Hafnarfjarðar ráðgjöf um málefni og hagsmuni bæjarbúa sem eru innflytjendur. Helstu verkefni verkefnastjóra fjölmenningar snúa að upplýsingagjöf og kynningu fyrir erlenda íbúa, stefnumótun í málaflokknum í samtarfi við alla hlutaðeigandi aðila, gerð áætlana um móttöku nýrra íbúa, umsjón og stuðningi við fjölmenningarráð, sýnileika og  öflun og greiningu á upplýsingum um stöðu innflytjenda í sveitarfélaginu auk þess að vera í forsvari fyrir samskipti vegna rannsókna, styrkja og þróunarverkefna á sviði málaflokksins.

Hildur Ýr hefur þegar hafið störf og er staðsett á skrifstofu þjónustu- og þróunarsviðs á 2. hæð í Ráðhúsi Hafnarfjarðar.
Netfang Hildar er: hilduryr@hafnarfjordur.is

Suggestion portal