Opnunartímar safna og sundlauga í Hafnarfirði um páskana 2026

News

Hafnarfjörður býður íbúa og gesti velkomna til að njóta páskanna með fjölbreyttu úrvali af afþreyingu. Söfn bæjarins og sundlaugar verða opin með breyttum opnunartíma yfir hátíðina. Skoðaðu opnunartímana.

Gleðilega páska í Hafnarfirði

Páskarnir bíða þín í Hafnarfirði. Margt í boði og hægt að njóta þess að kíkja í sund og söfn Hafnarfjarðarbæjar.

Kíktu í Hafnarborg

Tvær sýningar eru í gangi í Port city. Sýningin Honest individuals eftir Weroniku Balcerak og Lukas Bury. Einnig Echo eftir Rögnu Fróða.

  • Skírdagur: Opið milli kl. 12:00–17:00
  • Föstudagurinn langi: Closed
  • Laugardagur: Opið milli kl. 12:00–17:00
  • Páskadagur: Closed
  • Annar í páskum: Opið milli kl. 12:00–17:00

Stökktu í Byggðasafnið

The Folk Museum (Pakkhúsið) verður opið laugardaginn fyrir páska frá kl. 11:00–17:00, en almennt er safnið opið um helgar á þessum árstíma. Þar má til að mynda sjá dymblana sem Dymbilvikan er kennd.

Komdu á bókasafnið

Library Hafnarfjarðar verður opið á laugardaginn 4. apríl um páska, frá kl. 12:00–16:00. Lokað er skírdag, föstudaginn langa, páskadag og annan dag páska.

Komdu að synda

Sundlaugar bæjarins verða með breyttan opnunartíma yfir páskana. Hver laug með sinn tíma. Sjáðu hér.

Njóttu páskanna í Hafnarfirði

Páskarnir eru kjörið tækifæri til að njóta samveru, menningar og útivistar. Hvort sem leiðin liggur á safn, í sund eða í gönguferð um bæinn, er margt í boði fyrir alla fjölskylduna.

Many Interesting places eru í göngufæri frá miðbænum, til dæmis Hellisgerði, Víðistaðatún, Lækurinn og Hamarinn auk þess sem Hafnfirðingar búa við þann munað að vera með Helgafellið, Hvaleyrarvatn, Ásfjallið og Ástjörn í bakgarðinum hjá sér.

Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann um páskana og njóta samveru og útiveru í faðmi fjölskyldu og vina.

 

 

 

 

Suggestion portal