Plastic-free September – let's get actively involved!
Plastlaus september er árvekniátak og hefur þann mikilvæga tilgang að vekja fólk til umhugsunar um plastnotkun og þann plastúrgang sem fellur til dagsdaglega. Hafnarfjarðarbær er einn styrktaraðila.
Plastlaus september er árvekniátak, sem haldið var í fyrsta sinn í september 2017. Þátttaka fór fram úr björtustu vonum og ljóst að farvegurinn er frjór þegar kemur að umhverfismálum á Íslandi. Átakið er árlegt og undirbúningsvinna stendur yfir allt árið – til dæmis með fræðslu um plastlausar lausnir á Facebook, Instagram og Snapchat, og í fyrirlestrarformi í fyrirtækjum og skólum. Átakið hefur vaxið mikið frá fyrsta árinu og æ fleiri sem eru farnir að átta sig á skaðsemi einnota plasts fyrir umhverfið.
Hafnarfjarðarbær styður við árvekniátakið!
Átakið á að vekja fólk til umhugsunar
Tilgangur verkefnisins er að vekja fólk til umhugsunar um plastnotkun og þann plastúrgang sem fellur til dagsdaglega og leita leiða til að minnka notkunina. Gríðarlegt magn af einnota plasti er urðað eða endar í hafinu sem er mikið áhyggjuefni. Allt plast sem hefur verið framleitt er enn til og eyðist ekki þ.e. það plast sem ekki hefur endað í sorpbrennslu. Plastið brotnar niður í smærri einingar (örplast) og áhrif þess á lífríki er ekki að fullu þekkt.
Plastlaus september hvetur okkur til að nota minna af einnota plasti og velja vörur úr öðru hráefni þegar því er komið við. Átakið snýst ekki um að vera fullkomlega plastlaus í september heldur að finna sér markmið í mánuðinum til að minnka neyslu á einnota plastumbúðum.
Við hvetjum fólk til að taka virkan þátt í Plastlausum september
On the web www.plastlausseptember.is er að finna ráð til að minnka plastnotkun í daglegu lífi. Á samfélagsmiðlum verkefnisins er hægt að fá góð ráð um plastlausan lífstíl, hafa skoðanaskipti, koma með ábendingar og deila eigin reynslu:
- Facebook síða
- Facebook hópur
- Snapchat: plastlaussept
Við hvetjum fólk líka til að deila gleðinni og munum eftir myllumerkjunum #plastlaus #plastlausseptember og #breytumtilhinsbetra
Taktu skrefið!
Veljum verkefni af lista á vef átaksins, eitt eða fleiri og tökum áskoruninni #plastlaus. Skráðu þig í átakið svo þú teljist með! Með því að leggjast öll á eitt getum við haft áhrif.
Hér eru veggspjöld sem prenta má út og hengja upp á vinnustöðum og víðar.
- Veggspjald A3 stærð: Hvað getum við gert?
- Veggspjald A4 stærð: Hvað getum við gert?
- Veggspjald A4 stærð: 30 leiðir til að minnka plastið
- Veggspjald A4 stærð: „Við tökum þátt í Plastlausum september með því að …“