Seinni bólusetning barna í Laugardalshöll
Seinni bólusetning grunnskólabarna í 1. – 6. bekk á höfuðborgarsvæðinu fer fram í Laugardalshöll vikuna 31. janúar til 4. febrúar 2022. Þá eru liðnar 3 vikur frá fyrri skammtinum.
Á bólusetningardegi lýkur skóladegi kl. 11
Seinni bólusetning nemenda í 1. – 6. bekk á höfuðborgarsvæðinu fer fram í Laugardalshöll vikuna 31. janúar til 4. febrúar 2022. Þá eru liðnar 3 vikur frá fyrri skammtinum. Barnið á að mæta á sama tíma og vikudegi og það gerði þá. Vísað er til tilkynningar um fyrri bólusetninguna varðandi nánari upplýsingar. Samþykki sem var veitt þá gildir áfram.
Barnið mætir í Laugardalshöll með fylgdarmanni á réttum tíma miðað við bólusetningadag skólans og fæðingarmánuð. Fylgdarmaður er með barninu allan tímann og bíður með barninu eftir bólusetningu. Grímuskylda er bæði fyrir fullorðna og börn. Systkini mega koma á sama tíma. Ef barn greindist með COVD-19 sjúkdóminn eftir fyrri bólusetninguna á að bíða með bólusetningu í 3. mánuði frá greiningardegi. Börn 5 til 11 ára sem eiga eftir að fá fyrri skammtinn eru alltaf velkomin í Laugardalshöll.
Upplýsingar fyrir börn og fullorðna um bólusetningar barna gegn COVID-19 á mörgum tungumálum: covid.is/barn
Dagsetningar bólusetninga í grunnskólum Hafnarfjarðar
Mismunandi er milli skóla í Hafnarfirði hvaða dag og á hvaða tíma nemendur mæta í höllina og fá foreldrar og forsjáraðilar póst þess efnis frá skóla sinna barna en einnig má sjá dagsetningarnar hér fyrir neðan. Á bólusetningardegi lýkur skóladegi kl. 11. Er það gert til þess að foreldrar hafi ráðrúm til að koma börnum sínum í bólusetningu þennan dag á tilsettum tíma. Frístundaheimili skólanna verða með venjubundna opnun á bólusetningardegi. Allar upplýsingar sem varða bólusetninguna sjálfa koma frá Heilsugæslunni og er foreldrum bent á að leita til hennar ef eitthvað er óljóst varðandi framkvæmd hennar.
- 31. janúar – Barnaskóli Hjallastefnunnar og Engidalsskóli
- 1. febrúar – Setbergsskóli og Víðistaðaskóli
- 2. febrúar – Áslandsskóli og Öldutúnsskóli
- 3. febrúar – Lækjarskóli og Hraunvallaskóli
- 4. febrúar – Hvaleyrarskóli og Skarðshlíðarskóli
Vegna barna í forsjá Barnaverndar hjá sveitarfélögunum
Barnavernd ein er skráð forsjáraðili í gögnum sem sóttvarnalæknir hefur frá Þjóðskrá og því enginn sem fær aðgang að barni á skraning.covid.is. Þetta mun ekki hindra bólusetninguna ef fósturforeldrar sækjast eftir henni. Fósturforeldrar mæta með barnið ef það á að fá bólusetninguna, með skilríki sín og hvers konar staðfestingu frá Barnavernd á varanlegu fóstri. Höfnun má senda á mottaka@landlaeknir.is ef ekki stendur til að bólusetja yfir höfuð. Ekki þarf að senda sérstaka afstöðu ef bólusetning bíður vegna nýlegs COVID-19 smits í þessu samhengi, heldur hafa samband við viðkomandi heilsugæslu upp á heppilega tímasetningu þeirrar bólusetningar.