Nýtt sorpflokkunarkerfi
Um miðjan maí 2023 hófst innleiðing á nýju sorpflokkunarkerfi í Hafnarfirði, líkt og á höfuðborgarsvæðinu öllu. Fjórum úrgangsflokkum verður framvegis safnað við hvert heimili bæjarins lögum samkvæmt. Allar almennar upplýsingar um nýtt fyrirkomulag má finna á vefnum: www.flokkum.is.
Nýtt sorpflokkunarkerfi
Um miðjan maí 2023 hófst innleiðing á nýju sorpflokkunarkerfi í Hafnarfirði og verður fjórum úrgangsflokkum framvegis safnað við hvert heimili bæjarins lögum samkvæmt:
- Food remains
- Mixed waste
- Plastic packaging
- Paper and cardboard
Fjöldi nýrra tunna á heimili
| Fjöldi fastnúmera á hverju heimilisfangi | 240L tvískipt sorptunna: | 240L brúntunna: |
|---|---|---|
| 1 | 1 | 0 |
| 2 | 2 | 0 |
| 3 | 3 | 0 |
| 4-7 | 0 | 2 |
| 8-10 | 0 | 3 |
| 11-13 | 0 | 4 |
| 14-16 | 0 | 5 |
| 17-19 | 0 | 6 |
| 20-26 | 0 | 7 |
| 27-29 | 0 | 8 |
| 30-33 | 0 | 9 |
| 34-36 | 0 | 10 |
| 37-40 | 0 | 11 |
| 41-43 | 0 | 12 |
| 44-47 | 0 | 13 |
| 48-50 | 0 | 14 |
| 51-54 | 0 | 15 |
| 55-57 | 0 | 16 |
| 58-61 | 0 | 17 |
| 62-64 | 0 | 18 |
| 65-67 | 0 | 19 |
Dæmi
- Sérbýli (eitt fastnúmer) fær eina tvískipta 240L tunnu.
- Sérbýli (þrjú fastnúmer) fær þrjár tvískiptar 240L tunnur.
- Fjölbyli med 14 íbúðum (fastnúmerum) fær 5 brúntunnur.
- Fjölbyli med 56 íbúðum (fastnúmerum) fær 16 brúntunnur.
Sérbýli
Tvískipt ílát
Við hvert sérbýli (einbýli, tvíbýli og þríbýli) hefur eitt tvískipt 240 lítra ílát bæst við fyrir hvert fasteignanúmer. Tvískipta ílátið er fyrir matarleifar og blandaðan úrgang.
Endurmerkt ílát
Sorpílátin sem fyrir voru voru endurmerkt. Gráa tunnan fyrir plastumbúðir and bláa tunnan fyrir pappír og pappa. Hugmyndin er að öll sérbýli séu með þrjú ílát eftir breytinguna.
Kaup á tvískiptu íláti
Nú geta eigendur sérbýla, sem eru virk í flokkun og eru með 240L plast- og pappatunnurnar hálftómar geta keypt sér annað tvískipt 240L ílát fyrir plast og pappír. Ekki verður aukin losunartíðni fyrir heimili með tvö tvískipt ílát.
Tvískipt ílát
Hægt er að kaupa tvískipt 240L ílát fyrir plast og pappír.
Fjölbýli
Ílát fyrir matarleifar
Við fjölbýli bætast við brún 240L ílát fyrir matarleifar en fjöldi íláta er sérsniðinn að þörfum hvers fjölbýlis.
Samsetning íláta
Grátunnur/-kör verða endurmerktar fyrir blandaðan úrgang og plast. Blátunnur/-kör undir pappír/pappa verða einnig endurmerktar.
Djúpgámar í fjölbýli
Við fjölbýli með djúpgáma er hafin samvinna með húsfélögum við að finna lausn á söfnun úrgangsflokkanna.
Losun, sorpílát og sorptunnugerði
Plastkarfa og bréfpokar - lífrænn úrgangur
Samhliða dreifingu á ílátum fá öll heimili plastkörfur og bréfpoka til að safna matarleifum inni á heimilunum. Pokar verða fríir út árið í matvöruverslunum. Ekki er leyfilegt að nota aðrar pokategundir, hvorki úr pappír, maís eða plasti fyrir matarleifar.
Losunartíðni
Ílát undir matarleifar og blandaðan úrgang verða áfram losuð á 14 daga fresti. Ílát undir plast og pappír verða áfram losuð samtímis á 28 daga fresti. Ekki er hægt að sækja um aukna tíðni á sorplosun. Hér getur þú skoðað viðmiðunardagsetningar fyrir losun á þínu heimili. Ábendingar um sorplosanir t.d. ekki búið að tæma skal senda á þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar á netfangið: thm@hafnarfjordur.is eða hringja í síma 585-5670.
Almennt um sorpílátin
Í Hafnarfirði eiga íbúar sorpílátin sín sjálf og sjá um endurnýjun þeirra. Umsóknir fyrir kaup á nýjum 240L ílátum og aukalosun fyrir aukatunnur er að finna á Our pages undir Umsóknir (umsóknin Sorpílát). Hafnarfjarðarbær selur ekki 660L kör, þau er hægt að kaupa hjá Terra og Íslenska gámafélaginu. Ný lok á sorptunnur (fyrir tunnutýpur 2013 og yngri), tappa og dekk eru seld í afgreiðslu þjónustumiðstöðvar að Norðurhellu 2.
Sorptunnugerði
Ekki þarf að sækja um leyfi byggingafulltrúa þegar sorptunnugerði eru byggð eða breytt. Huga þarf þó að sjónlínum t.d. vegna bílastæða og þegar sorptunnugerði er við lóðarmörk þá þarf samþykki aðliggjandi lóðarhafa. Húseigendur geta sent byggingafulltrúa teikningu á netfangið: byggingafulltrui@hafnarfjordur.is
Samskipti
Íbúar eru hvattir til að hafa samband við Hafnarfjarðarbæ þegar spurningar vakna með því að:
-
585 5500 Hringja í þjónustuver
-
Suggestion portal nýta ábendingagáttina á vef sveitarfélagsins
-
Send enquiry senda tölvupóst á þjónustuver Hafnarfjarðar