Nursery schools
The nursery school is the first stage of schooling. There, children are nurtured through a creative and encouraging approach.
Children's well-being
Children's well-beingMargs konar stoðþjónusta er fyrir hendi í leikskólum, til dæmis sérkennsla, snemmtæk íhlutun, greiningar, ráðgjöf og námskeið.
Children's well-being
Á Íslandi hafa ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna tekið gildi. Þau eiga að sjá til þess að börn og foreldrar hafi greiðan aðgang að þeirri þjónustu sem þau þurfa og fái rétta aðstoð á réttum tíma, frá réttum aðilum.
Öll börn undir 18 ára aldri og fjölskyldur þeirra skulu hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er:
- að hafa hagsmuni barns að leiðarljósi
- að rækja hlutverk sitt í samstarfi og samráði við foreldra og barn
- að veita upplýsingar um þjónustu í þágu farsældar barns
- að aðstoða við að tryggja aðgang að frummati á þörfum barns
- að skipuleggja og fylgja eftir samþættingu fyrsta stigs þjónustu í þágu farsældar barns
- að koma upplýsingum til sveitarfélags um þörf fyrir tilnefningu málstjóra
- að taka þátt í starfi stuðningsteymis eftir því sem við á
Þegar barn er við nám í leik-, grunn-, eða framhaldsskóla er tengiliður þjónustu í þágu farsældar barns starfsmaður skólans þar sem barnið er við nám eða leik.
Sérkennsla
Markmiðið með sérkennslu í leikskólum er að tryggja að börn njóti leikskóladvalarinnar og fái fjölbreytilega kennslu sem taki mið af þörfum barnsins. Leikskólar bera ábyrgð á að börn sem þess þurfa hljóti sérkennslu.
Í hverjum leikskóla starfar sérkennslustjóri sem er faglegur umsjónarmaður sérkennslu skólans. Sérkennslu- og kennsluráðgjafar starfa sem tengiliðir barna.
Í einhverjum tilvikum getur barn þurft að sækja stuðning utan leikskóla, til dæmis iðjuþjálfun, sjúkraþjálfun eða talþjálfun. Umsækjendur senda beiðni til deildarstjóra greiningar- og ráðgjafadeildar.
Sálfræðiþjónusta
Sálfræðingar leikskóla gera athuganir á leikskólabörnum og veita starfsfólki leikskóla og foreldrum ráðgjöf. Beiðnir um sálfræðiþjónustu þurfa að berast til sérkennslustjóra leikskóla á þar til gerðu eyðublaði, sem útfyllt er í samstarfi foreldra og leikskóla. Samþykki foreldra fyrir beiðni þarf alltaf að liggja fyrir.
Talmeinaþjónusta
Talmeinafræðingar gera athuganir á leikskólabörnum og veita starfsfólki leikskóla og foreldrum ráðgjöf. Beiðnir um athugun talmeinafræðings þurfa að berast til sérkennslustjóra leikskóla á þar til gerðu eyðublaði, sem útfyllt er í samstarfi foreldra og leikskóla. Samþykki foreldra fyrir beiðni þarf alltaf að liggja fyrir.
Uppeldi – PMTO foreldrafærni og SMT skólafærni
PMTO stands for „Parent Management Training – Oregon Method“, which is an approach for parents and others involved in parenting. PMTO is an evidence-based approach that reduces behavioural difficulties in children and adolescents and strengthens parents in their role. A variety of resources, courses and advice are available for parents.
SMT school skills is a similar approach to PMTO, with an emphasis on preventing and reducing behavioural problems.