The Hammer
Hvað er hægt að gera í Hamrinum?
Allt ungt fólk er velkomið í Hamarinn! Þar er alltaf kósý stemning, hægt er að kíkja í pool, horfa á þætti, tefla, grípa í gítar, spila eða bara vera til og spjalla. Í Hamrinum er góð aðstaða fyrir viðburði og er ungt fólk hvatt til að halda þar tónleika, myndlistarsýningar, stunda hugleiðslu og íhugun eða að spila Dungeons og Dragons langt fram á kvöld.
Upplýsingar um dagskrá og viðburði fram undan má finna á facebook-síðu Hamarsins.
Starfsfólk er tilbúið að aðstoða með allt sem þér liggur á hjarta, bæði á íslensku og ensku. Hamarinn er í virku samstarfi við Rauða krossinn og er með skipulagt félagsstarf fyrir ungt fólk á flótta og ungt fólk af erlendum uppruna.
Áfengi, fíkniefni, reykingar, munntóbak og veip er bannað.
Tilgangur Hamarsins
Tilgangur Hamarsins er að:
- bjóða upp á jákvætt félagslegt umhverfi
- aðstoða ungt fólki að sinna sínum áhugamálum
- koma hugmyndum ungmenna í framkvæmd
- vera staður til að læra á eða finna út hvað maður vill læra
- bjóða upp á fjölbreytt námskeið
- aðstoða með ráðgjöf og þjónustu fagaðila ef þess er óskað, til dæmis sálfræðinga
Ertu með hugmyndir fyrir Hamarinn?
Í Hamrinum er starfandi félag ungs fólks sem hefur áhrif á starfsemi Hamarsins og vill beita sér fyrir hagsmunum ungs fólks í Hafnarfirði. Aðalfundur er í október þar sem kosið er í nýja stjórn.
Starfsemin er sífellt í endurskoðun og eru allar hugmyndir um hvernig má bæta starfsemi Hamarsins vel þegnar. Hægt er að tala við starfsfólk á staðnum, senda tölvupóst á hamarinn@hafnarfjordur.is eða skilaboð í gegnum Facebook.