Krakkavitinn er síða fyrir þig ef þú vilt vita meira um réttindi barna, hvað ungmennaráðið í Hafnarfirði er að bralla og hvað skiptir unga fólkið í bænum máli.
Hér getur þú lesið fréttir, deilt hugmyndum og haft áhrif með því að koma þínum ábendingum áfram!
Ungmennaráð Hafnarfjarðar er öruggur vettvangur fyrir ungmenni í framhalds- og grunnskólum til að koma fram þeirra skoðunum.
Ráðið gefur ungmennum tækifæri til þess segja skoðanir sínar um málefni sem tengjast börnum og ungmennum.
Þetta ráð hefur haft áhrif á daglegt líf ungmenna, en undanfarin ár hefur ráðið lagt fram tillögur til bæjarstjórnar, til dæmis að hafa tíðarvörur á baðherbergjum skólanna og óska eftir meiri kynfræðslu í grunnskólum Hafnarfjarðar.
Ungmennaráðið er líka duglegt að taka þátt í alls konar verkefnum. Þau hafa farið á ráðstefnur eins og Ungt Fólk og lýðræði, á Farsældarþing í Hörpu ásamt öðrum verkefnum, til dæmis að fara til Tartu, Höfn í Hornafirði og á Alþingi.
Guðbjörg Helga Kolbeins
Fulltrúi í ungmennaráði Hafnarfjarðar
Vissir þú þetta?
The United Nations Convention on the Rights of the Child
Barnasáttmálinn er alþjóðleg viðurkenning á að börn séu fullgildir einstaklingar með sjálfstæð réttindi og að þið eigið ykkar eigin réttindi – óháð réttindum fullorðinna.
Þú getur lesið allt um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna á barnvænu máli.
Hafnarfjörður is aðinnleiðaBarnasáttmálasameinuðuþjóðanna í samstarfivið UNICEF. Enút á hvaðgengurþaðeiginlega?
Það þýðir að með því að innleiða að Hafnarfjörður samþykki að nota sáttmálann sem viðmið í sínu starfi og að forsendur sáttmálans gangi sem rauður þráður gegnum starfsemi alla starfsemi þess.
Starfsfólk og stjórnmálamenn Hafnarfjarðar eiga að setja upp svokölluð „barnaréttindagleraugu“ og skoða verk- og ákvarðanaferla með hliðsjón af sáttmálanum og leita meira til barna og ungmenna og fá ykkar skoðanir til að raddir ykkar geti hljómað hátt.
Það er líka hægt að horfa á myndband
Þú getur horft á myndbandsfræðslu um Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna frá UNICEF Akademíunni. Samkvæmt 42. grein þurfa allir að þekkja réttindi barna.
Þú getur fengið fjölskyldumeðlimi með þér í lið til að fræðast saman um réttindi barna.
Í febrúar árið 2024 var settur sérstakur barnahnappur inn á alla iPada hjá börnum og ungmennum í 5.-10. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar.
Barnahnappurinn is leið þín and vina þinnatilaðbiðja um aðstoðandhjálp á auðveldanhátt. Hnappurinnopnaraðgangaðsíðuþarsemþiðgetiðlátið vita aflíðanykkar, áhyggjumeðaaðstæðumandóskaðeftiraðstoð á auðveldanandaðgengileganhátt.
Réttindahornið á barnadeildinni
Hafnarfjörður Library er með sérstakt réttindahorn á barnadeildinni. Þar er hægt að fræðast í gegnum bækur um greinar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
Vissir þú að:
börn og unglingar undir 18 ára fá ókeypis skírteini gegn ábyrgð foreldra?
á bókasafni Hafnafjarðar getur þú t.d. fengið lánað Ukulele?
það er hægt að bóka rabbrými á bókasafninu og taka upp hlaðvarp?
Ef þú ert á aldrinum 12- 25 ára getur þú fengið fría ráðgjöf hjá Berginu Headspace á Austurgötu 8 í Hafnarfirði.
Bergið is stuðnings– andráðgjafaseturfyrirungtfólkuppað 25 áraaldri. ObjectiveBergsins is aðbjóðaupp á þjónustumeðáherslu á stuðning, fræðsluandráðgjöf. Í Berginu is lagtuppmeðaðskapanotalegtandöruggtumhverfifyrirungtfólksemvillfáaðstoðfagfólksandnotendameðfjölbreyttareynslu.
Ef þú hefur spurningar varðandi kynheilbrigði, sambönd eða samskiptum getur þú farið á vefsíðu Barnaheills þar sem má finna ýmsar vangaveltur og svör við pælingum ungs fólks.