Beggubúð and a mobile micro-Christmas show
Byggðasafn Hafnarfjarðar tekur ávallt virkan þátt í aðventustemningunni í miðbæ Hafnarfjarðar, enda á besta stað í jólabænum. Að venju eru gluggar Beggubúðar, sem staðsett er í portinu á bak við Pakkhúsið, skreyttir jólaljósum og öðrum munum frá gamalli tíð og geta gestir og gangandi komist í notalegt nostalgíukast þar.
Jólaljós og munir frá gamalli tíð
Byggðasafn Hafnarfjarðar tekur ávallt virkan þátt í aðventustemningunni í miðbæ Hafnarfjarðar, enda á besta stað í jólabænum. Að venju eru gluggar Beggubúðar, sem staðsett er í portinu á bak við Pakkhúsið, skreyttir jólaljósum og öðrum munum frá gamalli tíð og geta gestir og gangandi komist í notalegt nostalgíukast þar. Hin vinsæla og rótgróna jóladagskrá safnsins fyrir leikskólabörn er á sínum stað þar sem þau hitta algjöran jólasvein.
Þemasýningin Hafnarfjarðarlögreglan, hraustir menn og áræðnir stendur yfir í Pakkhúsinu auk þess sem þeirri nýjung hefur verið hrundið af stað í ár að bjóða upp á færanlega ör-jólasýningu, sýningarskáp á hjólum sem ber anda og merki jólanna og staðsettur er í verslunarmiðstöðinni Firði á opnunartíma Fjarðar. Sýningar byggðasafnsins í húsum safnsins að Vesturgötu 6 eru opnar á laugardögum og sunnudögum frá kl. 11 – 17 alla aðventuhelgarnar. Að sjálfsögðu er frítt inn líkt og allt árið um kring.
Jólablað Hafnarfjarðar 2023
This coverage is part of the content in jólablaði Hafnarfjarðar 2023. Jólablaðið hefur þann eina og sanna tilgang að kynna jólabæinn Hafnarfjörð fyrir öllum áhugasömum, fyrir gestum og gangandi og varpa ljósi á þann hlýleika og fjölbreytileika sem býr með fólkinu og fyrirtækjunum í jólabænum Hafnarfirði. Jólablað Hafnarfjarðar er gefið út í sömu viku og Jólaþorpið opnar ár hvert og er dreift 72.500 eintökum. Jólablaðið hefur þann tilgang að kynna jólabæinn Hafnarfjörð fyrir öllum áhugasömum, gestum og gangandi, og varpa ljósi á hlýleikann og fjölbreytileikann sem býr með fólkinu og fyrirtækjunum í Hafnarfirði.
The Christmas supplement is available at Fjarðarkaup, Firði Shopping Centre, the City of Hafnarfjörður's customer service, Hafnarfjörður Library, Hafnarborg, the Hafnarfjörður Folk Museum and at the town's swimming pools.
