Sjóður til eflingar á tónlistarlífi í bænum
Styrkir úr sjóði Friðriks og Guðlaugar. Stjórn sjóðs Friðriks Bjarnasonar og Guðlaugar Pétursdóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki til að efla tónlistarlíf í Hafnarfirði.
The Fund of Friðrik Bjarnason and Guðlaug Pétursdóttir
Stjórn sjóðs Friðriks Bjarnasonar og Guðlaugar Pétursdóttur auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Hlutverk sjóðsins er að efla tónlistarlíf í Hafnarfirði, þá einkum til eflingar sönglífs í bænum, og styrkja hafnfirska nemendur til framhaldsnáms í tónlist og fræðimenn í tónlist. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2024.
Sjóður til eflingar tónlistarlífi í Hafnarfirði
Í erfðaskrá frá 1960 arfleiddu hjónin Friðrik Bjarnason og Guðlaug Pétursdóttir Hafnarfjarðarbæ af miklum hluta eigna sinna og mæltu svo fyrir að bækur og munir skyldu varðveittar í bókasafninu og að stofnaður væri sjóður til að “efla tónlistarlíf í Hafnarfirði með þeim hætti er best þykir fara hverju sinni, þó einkum til eflingar sönglífs í bænum“, og „styrkja nemendur til tónlistarnáms og fræðimenn í tónlist“. Styrkveiting fer fram á fæðingardegi Friðriks 27. nóvember.
Stjórn sjóðsins skipa:
- Sigurður Nordal
- Valgerður Auður Andrésdóttir
- Einar Sigurbergur Arason
Application is made on Our pages á hafnarfjordur.is. Umsækjandi skal gefa greinargóða lýsingu á námi sínu eða fyrirhuguðu verkefni. Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á: menning@hafnarfjordur.is
Hægt er að fræðast um Friðrik og Guðlaugu á ismus.is
