Skapandi sumarstörf – Magnús
Magnús Trevenen Davíðsson er lagahöfundur, gítarleikari og söngvari sem kallar sig listamannsnafninu “Kids on Holiday”. Verkefni Magnúsar í sumar var að leggja lokahönd á stuttskífu eða svo kallaða “EP” plötu þar sem hann semur öll lögin og tekur upp sjálfur.
MAGNÚS TREVENEN DAVÍÐSSON / “Kids on Holiday”
Magnús Trevenen Davíðsson er lagahöfundur, gítarleikari og söngvari sem kallar sig listamannsnafninu “Kids on Holiday”. Verkefni Magnúsar í sumar var að leggja lokahönd á stuttskífu eða svo kallaða “EP” plötu þar sem hann semur öll lögin og tekur upp sjálfur.


Götutónlist víðsvegar um bæinn
Magnús var áberandi í miðbæ Hafnarfjarðar þann 17. júní á Austurgötuhátíðinni þar sem hann söng og spilaði víðsvegar fyrir gesti og gangandi og sló í gegn þegar hann kom fram í kvöld dagskránni sama kvöld. Að auki hefur hann haldið um klukkutíma tónleika nokkrum sinnum í sumar á Bókasani Hafnarfjarðar, við góðar viðtökur.

Útgáfutónleikar í Ungmennahúsi Hamarsins
Útgáfutónleikar „Kids on Holiday“ voru svo haldnir á sviði Hamarsins síðastliðinn miðvikudag, 10. ágúst. Þar sem hann frumflutti lögin sem hann hefur unnið að allt í sumar fyrir gesti og aðdáendur, sem hluti af verkefni Skapandi Sumarstarfa Hamarsins og Hafnarfjarðar 2022 og verða lögin hluti af jómfrúarplötu hans sem kemur út í haust.

Spennandi tímar framundan
Tónlistarmaðurinn heldur nú á vit ævintýranna, er hann flytur til Þýskalands þar sem hann mun hefja nám í virtum tónlistarskóla Berlínar, BIMM institute.
Hann á því svo sannarlega framtíðina fyrir sér og verður spennandi að fylgjast með.