Skipulagsbreyting – Hafravellir
Í auglýsingu er breyting á deiliskipulagi við Hafravelli 13. Breyting felst í stækkun lóðar sem nemur tveimur bílastæðum af fjórum sem staðsett eru við suðvesturhorn lóðarinnar. Lóðin stækkar um 25 m². Frestur til athugasemda til 27. febrúar.
Breyting á deiliskipulagi við Hafravelli 13, Hafnarfirði
Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum 31.08.2015 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar að Hafravöllum 13 í samræmi við 43 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Breytingin felst í stækkun lóðar sem nemur tveimur bílastæðum af fjórum sem staðsett eru við suð- vesturhorn lóðarinnar nr. 13 við Hafravelli. Lóðin stækkar um 25 m². Nákvæm stærð stækkunar mun koma fram á mæliblaði.
Tillögurnar verða til sýnis í þjónustuveri Hafnarfjarðar Strandgötu 6 og hjá Umhverfis- og skipulagsþjónustu að Norðurhellu 2, frá 13.01.2017 til 27.02.2017.
Hægt er að skoða tillöguna hér
Þeim sem telja sig hagsmuna eiga að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við breytinguna og skal þeim skilað skriflega til Umhverfis- og skipulagsþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, eigi síðar en 27.02.2017. Þeir sem eigi gera athugasemdir við breytinguna innan tilskilins frests, teljast samþykkir henni.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá umhverfis- og skipulagsþjónustu