Skoðanakönnun um vef Bókasafns Hafnarfjarðar
Hafnarfjarðarbær vinnur þessa dagana að nýjum vef fyrir Bókasafn Hafnarfjarðar. Íbúar og vinir Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka þátt í laufléttri og stuttri könnun um vefinn.
Hafnarfjarðarbær vinnur þessa dagana að nýjum vef fyrir Bókasafn Hafnarfjarðar. Í laufléttri og stuttri könnun sem íbúar og vinir Hafnarfjarðar eru hvattir til að taka þátt í er eingöngu spurt um atriði sem snerta vefinn: www.bokasafnhafnarfjardar.is og snúa m.a. að fjölda heimsókna á vef, hvernig vefurinn þjónar þörfum notenda, í hvaða tilgangi vefurinn er heimsóttur og hvaða virkni væri æskileg á vefnum?
Álit og skoðun íbúa skiptir mjög miklu máli og eru niðurstöður mikilvægt innlegg í greiningu og efnislegum og tæknilegum undirbúningi á nýjum vef.
Því fleiri svör – því betra!