Snjómoksturstækin tilbúin – Gul veðurviðvörun
Búist er við miklum snjó á höfuðborgarsvæðinu þegar kvölda tekur með tilheyrandi áhrifum á færð og ferðir um bæinn.
Snjómokstursvélar í viðbragðsstöðu
Búist er við fannfergi þegar líður á kvöld á höfuðborgarsvæðinu með tilheyrandi áhrifum á færð og ferðir um bæinn. Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar og verktakar eru í viðbragðsstöðu. Mokað er í takti við forgang. Alltaf er lögð áhersla á að halda stofnleiðum og safnbrautum opnum.
Almennt um snjómokstur í Hafnarfirði
Nú þegar fyrsti snjórinn fellur þennan veturinn er rétt að fara yfir framkvæmd og fyrirkomulag vegna snjómoksturs almennt í Hafnarfirði. Á veturna þegar snjóar mikið eða hálka myndast er reynt að bregðast við sem fyrst til að halda umferð gangandi. Þjónustumiðstöð Hafnarfjarðar sér um snjómokstur og hálkuvarnir og er með vaktir á tímabilinu 15. október–15. apríl og að jafnaði reynt að halda góðri þjónustu á götum og stígum frá kl. 7:30–22 (fer eftir forgangi) en veður stýrir þjónustutímanum. Verktakar eru kallaðir til þegar þarf á álagstíma. Götum er skipt upp í forgangsröðun – veður og aðstæður stýra svo hversu vel moksturinn gengur:
- Forgangur 1 – aðalgötur, strætóleiðir og stofngötur
- Forgangur 2 – leiðir að skólum, leikskólum, safngötur og milligötur
- Forgangur 3 – húsagötur og botngötur
Upplýsingar um snjómokstur og forgangsleiðir – Snjór og hálka | Hafnarfjörður (hafnarfjordur.is)
Residents can help with the gritting to ensure everyone's safety. Sand is available from the Service Centre, 2 Norðurhæll. You will need to bring your own container, for example a reusable bag, bucket or tray, but sand and a shovel are provided on site.
Gul veðurviðvörun í dag
Rétt er að vekja sérstaka athygli á því að frá og með kl. 18 í dag og til hádegis á morgun telur Veðurstofa Íslands líkur á snjókomu eða slyddu, staðbundið talsverð eða mikil úrkoma með lélegu skyggni og versnandi akstursskilyrðum – vedur.is | Viðvaranir | Veðurstofa Íslands