Söngnámskeið Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
Fjögurra vikna söngnámskeið frá 28. janúar til 22. febrúar undir leiðsögn Ernu Guðmundsdóttur og Ingibjargar Guðjónsdóttur söngkennara. Um er að ræða 4 x 30 mínútna einkatíma með söngkennara á viku og 2 x 60 mínútna hóptíma með söngkennurum og undirleikara.

Innifalið í námskeiði
- Góður undirbúningur fyrir kórsöng og/eða frekara söngnám
- Kennd er grunntækni í söng s.s. raddbeitingu, öndun og túlkun
- Kennslutímar eftir samkomulagi
- Einkatímar, hóptímar og undirleikur
Verð á námskeiði er 20.588 kr. Allar
nánar upplýsingar veitir skrifstofa skólans í síma 555 2704 og á netfangið tonhaf@tonhaf.is