Spennandi starf með skóla
Ert þú í leit að gefandi og skemmtilegu starfi með skóla sem veitir þér reynslu og hæfni í samskiptum, skipulagi og skemmtilegheitum? Nokkrar lausar stöður á frístundaheimilum Hafnarfjarðar.
Ert þú í leit að gefandi og skemmtilegu starfi með skóla sem veitir þér reynslu og hæfni í samskiptum, skipulagi og skemmtilegheitum?
Við viljum fá til liðs við okkur hressa og metnaðarfulla einstaklinga til að taka þátt í uppbyggilegu menntunar-, forvarnar- og afþreyingarstarfi með börnum á aldrinum 6-9 ára á frístundaheimilum okkar í vetur.
Hvað þarft ÞÚ að hafa til að bera:
- reynslu eða menntun sem nýtist í starfi (æskilegt)
- áhuga á að vinna með börnum
- hæfni í mannlegum samskiptum
- frumkvæði og sjálfstæði
Um er að ræða hlutastarf eftir hádegi virka daga sem hentar mjög háskólanemum og öðrum áhugasömum.
Erum við að leita að þér?
Nánari upplýsingar um störf í boði ásamt umsóknarformi er að finna hér