Stefán Gunnlaugsson
Stefán Gunnlaugsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði og alþingismaður, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 23. mars, níræður að aldri. Útför hans fer fram í dag.

Stefán Gunnlaugsson, fyrrverandi bæjarstjóri í Hafnarfirði og alþingismaður, andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 23. mars, níræður að aldri. Útför hans fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag.
Stefán var bæjarstjóri í Hafnarfirði 1954-1962, bæjarfulltrúi og forseti bæjarstjórnar 1950- 1954 og bæjarfulltrúi 1970- 1974. Þá var hann landskjörinn alþingismaður fyrir Alþýðuflokkinn 1971-1974.
Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar sendir fjölskyldu Stefáns innilegar samúðarkveðjur.