Policy on cruise ship arrivals approved
A new policy on the reception of cruise ships in Hafnarfjörður has been approved by the town council. The policy is valid until 2035.
Stefna um skemmtiferðaskipin samþykkt
Búist er við því að 13 skemmtiferðaskip komi 31 sinni til Hafnarfjarðar á næsta ári. Farþegafjöldinn er áætlaður 7.486 og áhafnarmeðlimir samtals 4.374. Þetta kemur fram í stefnu um móttöku skemmtiferðaskipa í Hafnarfirði. Skýrslan er unnin af Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins.
Stefnan var lögð fram til afgreiðslu bæjarráðs á síðasta fundi nóvembermánaðar og samþykkt. Stefnan er sett til ársins 2035 og verður endurskoðuð á þriggja ára fresti.
Tækifæri og áskoranir
Áhugavert er að rýna í skýrsluna. Þar segir meðal annars að 2023 hafi verið annasamasta árið með 27 komum skipanna og 10.635 farþegum. Farið er yfir helstu áskoranir í skýrslunni og hvernig tryggja megi að móttaka skemmtiferðaskipa verði í sátt við íbúa. Álagsstýringin sé best þegar eitt skip komi í einu og þau séu af minni gerðinni.
Farið er yfir efnahagsleg áhrif og hvernig megi hámarka efnahagslegan ávinning með áherslu á sterkt þjónustuframboð og lengingu dvalar gesta í bænum. Komur skipanna gefi atvinnutækifæri og arð. Styrkja megi þjónustuframboð og innviði til að tryggja góða móttöku gesta. Nýta þurfi auðlindir á skynsamlegan hátt til að tryggja langtíma ávinning fyrir efnahagslíf og umhverfi.
Skýrslunni er skipt upp í fjögur meginmarkmið: Efnahagsleg, samfélagsleg, umhverfisleg, sem og á jákvæða upplifun gesta. Farið er yfir þætti sem tryggja góða niðurstöðu og hvernig ná megi þeim.
Já, það er gott að vita hvert skal stíma!