Stóra upplestrarkeppnin í 30 ár
„Þið eigið bjarta framtíð,“ sagði forsetinn við ungmennin öll sem komu fram í Stóru upplestrarkeppninni í gær. Átján fulltrúar úr skólum Hafnarfjarðar lásu og enn fleiri komu fram og fluttu ljóð, tónlist og tóku við verðlaunum fyrir smásögur.
Hátíðleg stund í Víðistaðakirkju
Ásthildur Friðriksdóttir Setbergsskóla sigraði í Stóru upplestrarkeppninni síðdegis í gær. Keppnin var einstaklega glæsileg eins og öll fyrri ár. Arna Hlín Ýmisdóttir, Lækjarskóla, var í öðru sæti og Ómar Þór Karlsson, Hraunvallaskóla, í því þriðja. Eitt var öðruvísi en áður, Ingibjörg Einarsdóttir stjórnandi og einn þriggja upphafsmanna keppninnar, stýrði henni í síðasta sinn. Hún hefur stýrt keppninni í þrjátíu ár.
Kynslóðir þekkja keppnina
„Maður verður nú einhvern tímann að hætta,“ sagði Ingibjörg svo fallega í frétt Sjónvarpsins í gærkvöldi. Keppnin hefur dafnað og nú horfa sumir foreldrar á börnin sín lesa rétt eins og þeir gerðu sjálfir á sínum tíma – Já, kynslóð fram af kynslóð.
Átján börn úr grunnskólum Hafnarfjarðar lásu. Hátíðarbragurinn var mikill. „Takk fyrir mig,“ sagði Halla Tómasdóttir forseti Íslands um leið og hún þakkaði fyrir einstaklega töfrandi stund. Hún hvatti börnin áfram.
Björt framtíð barnanna
„Framtíðin er sannarlega björt þar sem börn lesa jafnvel og hér var gert og flytja ljóðin af svo miklu innsæi og tilfinningagreind.“ Forsetinn talaði um að stíga út fyrir þægindarammann, rétt eins og sagan sem börnin lásu úr, fjallaði um. Hún talaði um kvíða og hnúta fyrir svona verkefnum á barnsaldri.
„Ég er að segja þetta við ykkur í dag því ég er óendanlega stolt af ykkur.“ Þau hafi örugglega haft fiðrildi í maganum, jafnvel smá hnút og kvíða. „En það sem breytti lífi mínu er að ég fór á ræðunámskeið þrettán ára gömul og æfði mig að tala fyrir framan fólk.“ Fólk gangi í gegnum að finnast það ekki nóg en með æfingu verði hver sterkari. „Þið eigið bjarta framtíð fyrir höndum.“
Lesið var úr bókinni Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson. Hann sagði söguna fullkomnast í lestri barnanna og var stoltur. Hann sat, rétt eins og Halla og Inga Sæland menntamálaráðherra á fremsta bekk og hlýddi á börnin.
Keppnin upprunnin í Hafnarfirði
Stóra upplestrarkeppnin hóf göngu sína hér í Hafnarfirði 1996 og fimm árum síðar um allt land. Þúsundir hafa tekið þátt í gegnum tíðina. Árið 2010 kom Ingibjörg Litlu upplestrarkeppninni fyrir fjórðu bekkinga á fót og árið 2013 fékk hún fálkaorðu fyrir framlag sitt fyrir að efla lestrarkunnáttu barna.
„Það þarf alltaf að halda þessu vakandi,“ sagði Ingibjörg í sjónvarpsfréttum.
Börnin sem tóku þátt:
- Ásthildur Friðriksdóttir, Setbergsskóla
- Óli Freyr Arnórsson, Skarðshlíðarskóla
- Aldís Von Árnadóttir, Víðistaðaskóla
- Andrea Líf Grétarsdóttir, Áslandsskóla
- Ómar Þór Karlsson, Hraunvallaskóla
- Saga Sif Agnesardóttir, Hvaleyrarskóla
- Edda Margrét Reid, Engidalsskóla
- Arna Hlín Ýmisdóttir, Lækjarskóla
- Ásdís Inga Stephensdóttir Midgley, Öldutúnsskóla
- Þórir Sveinn Leósson, Áslandsskóla
- Anika Rut Stefánsdóttir, Skarðshlíðarskóla
- Áróra Lea Goðadóttir, Lækjarskóla
- Bríet Ýr Daðadóttir, Öldutúnsskóla
- Sara Sif Matus, Setbergsskóla
- Elmar Óðinn Davíðsson, Engidalsskóla
- Anna Sól Ísbrá Eiríksdóttir, Víðistaðaskóla
- Lára Sóley Erlendsdóttir, Hraunvallaskóla
- Hilmar Trausti Ingvarsson, Hvaleyrarskóla
Fjögur voru í dómnefnd. Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir formaður, Þórður Helgason, Hafrún Dóra Júlíusdóttir og Árni Sverrir Bjarnason.
Hljómsveit skipuð nemendum úr Tónskóla Hafnarfjarðar opnuðu dagskrána. Í henni voru Daníel Myrkvi Ólafsson Matthías Werner Ólafsson, Nökkvi Leó Kristjánsson og Snorri Rafnar Birkisson.
Þá tók talkór nemenda úr 4. bekk Ásvallaskóla við með kröftugum flutningi. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra flutti ávarp og keppnin hófst og lýsti þeirri seiglu sem þarf til að halda svona öflugu starfi uppi. „Ég vona að hún lifi áfram sem allra lengst, um alla framtíð.“
Fjöldi atriða á keppninni
Tekin var pása að klukkustund liðinni. Gestir fengu sér kaffi og muffins. Áður en úrslit voru kunngjörð gerðist svo margt mjög fallegt. Nemendurnir Oleksandr Zahorodnyi og Víkingur Hrafn Steinarsson í Skarðshlíðarskóla fluttu saman lagið Aldrei fór ég suður og Pietro Sismo Fortugno, nemandi í Setbergsskóla flutti ljóð á ítölsku. Þá flutti Valdís Silja Daðadóttir sem var í 2. sæti í keppninni í fyrra kynningu á ljóðaþætti.
Valdimar Víðisson bæjarstjóri flutti svo ræðu í lokin og þakkaði börnunum fyrir.
„Það er búið að vera virkilega notalegt og gaman að hlýða á ykkur, kæru nemendur, lesa af slíkri einlægni, öryggi og metnaði. Þið hafið staðið ykkur einstaklega vel og eigið mikið hrós skilið.“
Hann þakkaði svo Ingibjörgu fyrir ríkt framlag sitt.
„Það er eitt að fá góða hugmynd, en allt annað að fylgja henni eftir, halda utan um hana og rækta hana þannig að hún lifi og dafni í áratugi,“ sagði hann.
„Það hefur Ingibjörg gert, ásamt góðu samstarfsfólki, af einstakri alúð og eljusemi öll þessi ár. Fyrir það eigum við henni mikið að þakka. Framlag hennar hefur haft áhrif á fjölda barna og ungmenna, hér í Hafnarfirði og víðar um land.“
Og þetta er ekki allt. Keppnin á alltaf sína verðlaunateikningu á boðskort. Kortið hannaði Ari Fannar Eðvaldsson í 6. SH bekk í Áslandsskóla.
Sigurvegarar smásagnakeppninnar eru svo.
- 1. sæti :Lára Sigurbjörnsdóttir, Áslandsskóla, Gáttin til friðar.
- 3. sæti: Moritz Wilke Kjartansson, Lækjarskóla, með söguna: Hugarvinur
- 3. sæti: Kári Steinar Magnússon í Víðistaðaskóla með: Hvað ertu að hlusta á, Elísa Guðrún Magnúsdóttir í Setbergsskóla með söguna: Í skugga bókasafnsins
Ingibjörg sleit svo dagskránni og þakkaði fyrir árin þrjátíu. „Innilegar þakkir, þetta er frábært.“
Kæra Ingibjörg – Takk innilega fyrir öll árin og þá styrku stjórn sem þú hefur haft á þessari mikilvægu og fallegu stund.