Stórátak við uppbyggingu skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins
Null
Í dag skrifuðu borgarstjórinn í Reykjavík og bæjarstjórar Mosfellsbæjar, Seltjarnarness, Kópavogs, Garðabæjar og Hafnarfjarðar undir tímamótasamkomulag sveitarfélaganna um stórátak við endurnýjun og uppbyggingu mannvirkja skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins í Bláfjöllum og Skálafelli.
Undirritunin fór fram í þjónustumiðstöðinni í Bláfjöllum núna í hádeginu í blíðskapar slyddu.
Samkomulagið felur í sér að á næstu árum verður ráðist í endurnýjun og uppsetningu þriggja stólalyfta í Bláfjöllum og endurnýjun stólalyftu í Skálafelli. Ennfremur verður settur upp búnaður til snjóframleiðslu í Bláfjöllum.
Samhliða þessum verkefnum verður unnið að áframhaldandi uppbyggingu á skíðagöngusvæði og bættum aðstæðum fyrir skíðagöngufólk.
Áætlaður kostnaður vegna þessara framkvæmda á árunum 2019 – 2024 er um 3,6 milljarðar króna.
Þessi verkefni eru fyrri áfangi af tveimur við heildaruppbyggingu skíðasvæðanna sem byggja á tillögu að framtíðarsýn um uppbyggingu og rekstur þeirra til ársins 2030.
Með samkomulagi þessu verður rofin sú kyrrstaða sem verið hefur á uppbyggingu skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins um nokkurt skeið, og það markar því tímamót í uppbyggingu og rekstri skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.