The Big Clear-up Day 2024 will be on Sunday
Stóri plokkdagurinn verður haldinn frá morgni til kvölds sunnudaginn 28. apríl. Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar í Ráðhúsi og á Norðurhellu tók forskot á plokksæluna og plokkaði í nærumhverfi sinna starfsstöðva í gær, þriðjudag.
Svo er tilvalið að plokka alla daga ársins!
Stóri plokkdagurinn verður haldinn frá morgni til kvölds sunnudaginn 28. apríl. Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa og starfsfólk fyrirtækja í Hafnarfirði til virkrar þátttöku í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni eða á öðrum vel völdum svæðum. Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar í Ráðhúsi og á Norðurhellu tók forskot á plokksæluna í veðurblíðunni í gær og plokkaði í nærumhverfi sinna starfsstöðva.
Við hvetjum íbúa og fyrirtæki til þátttöku
Hafnarfjarðarbær hvetur íbúa og starfsfólk fyrirtækja í Hafnarfirði til virkrar þátttöku í deginum og plokka eins og vindurinn í sínu næsta nágrenni eða á öðrum vel völdum svæðum. Plokkarar eru vinsamlega beðnir um að nota glæra ruslapoka í plokki sínu til að auðvelda flokkun og urðun. Plokkarar eru jafnframt beðnir um að tilkynna um þá staði þar sem pokar eru skildir eftir í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins þar sem hægt er að taka mynd með nákvæmri staðsetningu. Í gegnum ábendingagátt er einnig tilvalið að benda sveitarfélaginu á svæði sem þarf að hreinsa sérstaklega eða koma með ábendingar um annað það sem betur má fara.

Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri tók þátt í litla plokkdeginum, þar sem starfsmenn Hafnarfjarðarbæjar plokka.
Afhverju er það að plokka frábær hugmynd?
- Frábær hreyfing fyrir alla aldurshópa
- Einstaklingsmiðað
- Hver á sínum hraða
- Hver ræður sínum tíma
- Frábært fyrir umhverfið
- Frábært fyrir líkama og sál – ákveðin núvitund og núllstilling
- Fegrar nærsamfélagið
- Öðrum góð fyrirmynd

Starfsfólk bæjarins plokkuðu og plokkuðu til að hita sig upp fyrir Stóra plokkdaginn á sunnudag.
Nánari upplýsingar um Stóra plokkdaginn
Helstu plokktrixin í bókinni
- Finna svæði til að plokka á og hvetja fjölskylduna til að taka þátt
- Stofna viðburð í eigin hverfi eða tengja sig inn á stofnaðan viðburð
- Útvega sér ruslapoka, hanska og plokktöng
- Klæða sig eftir aðstæðum
- Senda mynd og upplýsingar um staðsetningu poka í gegnum ábendingagátt sveitarfélagsins
- Gæta fyllstu varúðar og brýna fyrir börnum að láta nálar og aðra hættulega hluti vera, en tilkynna til foreldra eða umsjónarmanna svo mögulegt sé að fjarlægja þá
Gleðilega plokkhelgi!