Styrkir til hljóðvistar 2018
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna aðgerða á gluggum húsa við umferðarþungar götur.
Hafnarfjarðarbær auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna aðgerða á gluggum húsa við umferðarþungar götur. Frekari upplýsingar fást í Þjónustuveri Hafnarfjarðar, Strandgötu 6, sími 585-5500.
Styrkir eru veittir
til endurbóta á hljóðeinangrun glugga á þeim hliðum húss þar sem hljóðstig
reiknast 65 dB(A) eða hærra. Við úthlutun styrkja hafa þeir forgang sem búa við
verstar aðstæður. Umsækjendur skulu í umsókn sinni greina frá fyrirhuguð
aðgerðum og metur umhverfis- og skipulagsþjónusta hvort þær eru fullnægjandi en
það er forsenda styrkveitingar.
Umsóknarfrestur er til 1. maí n.k.