First of May
Sumri er fagnað með fjölbreyttri dagskrá á Sumardaginn fyrsta í Hafnarfirði. Ókeypis er í sund í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug í tilefni dagsins.
Við fögnum sumri með metnaðarfullri og fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Hátíðarhöld verða víðsvegar um bæinn í tilefni dagsins þ.á.m. hlaup, fjölskyldusmiðja, Sirkus Íslands, skátamessa, skrúðganga, fjölskyldudagskrá á Thorsplani í umsjón skátafélagsins Hraunbúa, söguganga, ömmu-og afabíó og komedy kvöld.
Hér má sjá dagskrá Sumardagsins fyrsta
Starfsfólk Hafnarfjarðarbæjar óskar íbúum, starfsmönnum fyrirtækja og stofnana, öðrum nærsveitungum og landsmönnum öllum gleðilegs sumars með þökk fyrir veturinn.