Sumarhátíð verður haldin á Víðistaðatúni á morgun fyrir börn og unglinga sem tekið hafa þátt í sumarstarfi í Hafnarfirði það sem af er sumri. Risarennibraut, þrautir og leikir í boði fyrir alla áhugasama.
Þriðjudaginn 5. júlí milli kl. 13 og 16 verður sumarhátíð haldin á Víðistaðatúni fyrir börn og unglinga sem tekið hafa þátt í sumarstarfi í Hafnarfirði það sem af er sumri. Hægt verður að leika sér m.a. í risarennibraut auk þess sem bryddað verður upp á hinum ýmsum þrautum og leikjum. Heitt verður á kolunum og boðið upp á grillaðar pylsur.
Allir velkomnir!