Sumarlestur 2017
Öllum krökkum sem farnir eru að lesa sjálfir er boðið að taka þátt í sumarlestri Bókasafns Hafnarfjarðar sem stendur yfir frá 1. júní til 18. ágúst. Allar lestrardagbækur sem berast fyrir eða á uppskeruhátíðinni 2. september verða settar í pott og dregnir verða út vinningar.
Öllum krökkum sem farnir eru að lesa sjálfir er boðið að taka þátt í sumarlestri Bókasafns Hafnarfjarðar sem stendur yfir frá 1. júní til 18. ágúst.
Sumarlestur – fyrirkomulag
- Skráðu þig í sumarlesturinn hjá starfsfólki í afgreiðslu eða á barnadeild og fáðu lestrardagbók.
- Lestu einhverja fáránlega skemmtilega bók, teiknimyndasögu, hljóðbók eða tímarit.
- Fáðu stimpil í lestrardagbókina.
- Starfsfólk lætur þig fá þátttökuseðil fyrir lestrarhest vikunnar.
- Í rammann neðst á þátttökuseðlinum skaltu skrifa umsögn um bókina eða teikna skemmtilega mynd.
- Settu seðilinn í rauða póstkassann á barnadeildinni.
- Vikulega í allt sumar drögum við svo út einn heppinn þátttakanda sem hlýtur titilinn lestrarhestur vikunnar og fær bókaverðlaun.
- Því fleiri bækur sem þú lest, því betri líkur á vinningi!
- Eftir 18. ágúst kemur þú svo með lestrardagbókina á bókasafnið og færð glaðning.
- Allar lestrardagbækur sem berast fyrir eða á uppskeruhátíðinni 2. september verða settar í pott og dregnir verða út vinningar.
Nánari dagskrá uppskeruhátíðar verður auglýst síðar