Sund og söfn um páskana
Nú er að njóta. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann um páskana og njóta samveru og útiveru í faðmi fjölskyldu og vina. Sundlaugar okkar og söfn verða opin sem hér segir og öll velkomin.
Gleðilega páska kæru Hafnfirðingar og vinir!
Nú er að njóta. Heilsubærinn Hafnarfjörður hvetur Hafnfirðinga til að draga djúpt andann um páskana og njóta samveru og útiveru í faðmi fjölskyldu og vina. Sundlaugar okkar og söfn verða opin sem hér segir og öll velkomin.
Komdu á safn!
- Hafnarfjörður Library er opið laugardaginn 19. apríl frá kl. 12-16
- Port city er opin frá kl. 12-17 á Skírdag, laugardaginn 19. apríl og á annan í páskum mánudaginn 21. apríl
- Hafnarfjörður Museum of Local History – The warehouse er opið laugardaginn 19. apríl frá kl. 11-17
Come for a swim!
Afgreiðslutímar í sundlaugum Hafnarfjarðar verða eftirfarandi yfir páskana.
Ásvallalaug
- Skírdagur 17. apríl, opið frá kl. 8.00 – 17.00
- Föstudagurinn langi 18. apríl, LOKAÐ
- Laugardagur 19. apríl, opið frá kl. 8.00 – 18.00
- Páskadagur 20. apríl, opið frá kl. 8.00 – 17.00
- Mánudagur 21. apríl – 2. í páskum, opið frá kl. 8.00 – 17.00
South Bay Swimming Pool
- Skírdagur 17. apríl, opið frá kl. 8.00 – 17.00
- Föstudagurinn langi 18. apríl, opið frá kl. 8.00 – 17.00
- Laugardagur 19. apríl, opið frá kl. 8.00 – 18.00
- Páskadagur 20. apríl, LOKAÐ
- Mánudagur 21. apríl – 2. í páskum, opið frá kl. 8.00 – 21.00
Hafnarfjörður Swimming Pool
- Lokað frá og með Skírdegi 17. apríl til og með mánudeginum 21. apríl
Come out to play!
Heilsubærinn Hafnarfjörður er að mörgu leyti einstakur bær, ekki síst fyrir lifandi og skemmtilegan miðbæ, heillandi hafnarsvæði og gott aðgengi að fjölbreyttum og fallegum náttúruperlum. Margir Interesting places eru í göngufæri frá miðbænum, til dæmis Hellisgerði, Víðistaðatún, Lækurinn og Hamarinn auk þess sem Hafnfirðingar búa við þann munað að vera með Helgafellið, Hvaleyrarvatn, Ásfjallið og Ástjörn í bakgarðinum hjá sér.
Leikskólar, grunnskólar, þjónustuver og þjónustumiðstöð
Grunnskólar Hafnarfjarðar eru í páskafríi. Hefðbundið skólastarf hefst á ný þriðjudaginn 22. apríl. Leikskólar Hafnarfjarðar og frístundaheimili eru opnin virka daga í dymbilvikunni utan rauðra daga. Þeir verða lokaðir frá og með fimmtudeginum 17. apríl til og með 21. apríl. Það sama gildir um þjónustuver Hafnarfjarðarbæjar að Strandgötu 6 og þjónustumiðstöð Norðurhellu 2.