Swimming pools reopen
Breytingar á sóttvarnarráðstöfunum sem taka gildi á morgun fimmtudaginn 10. desember heimila opnun sundlauga og baðstaða fyrir allt að 50% af hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Gildistími nýrrar ráðstöfunar er til og með 12. janúar 2021 nema annað sé auglýst.
Breytingar á sóttvarnaráðstöfunum sem taka gildi á morgun fimmtudaginn 10. desember heimila opnun sundlauga og baðstaða fyrir allt að 50% af hámarksfjölda gesta samkvæmt starfsleyfi. Gildistími nýrrar ráðstöfunar er til og með 12. janúar 2021 nema annað sé auglýst. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sérstök athygli er vakin á því að hægt er að fá raunupplýsingar um fjölda sundlaugagesta á síðu hverrar laugar.
Þetta þýðir að hámarksfjöldi í hverri laug er eftirfarandi:
- Ásvallalaug – 160 gestir
- Suðurbæjarlaug – 80 gestir
- Sundhöll Hafnarfjarðar – 32 gestir
Suðurbæjarlaug mun opna að nýju með inni- og útiklefum en rétt er að geta þess að eimbað og gufubaðsklefi kvenna í Suðurbæjarlaug verður áfram lokað. Jafnframt verða gufubaðsklefar karla í Sundhöll og Suðurbæjarlaug með mjög miklum takmörkunum á fjölda. Gestir eru hvattir til að gæta að 2 metra reglu í hvívetna og gæta fyllsta hreinlætis en samstarf í almannavörnum er forsenda þess að hægt er að hafa laugarnar opnar. Laugarnar verða opnar skv. venjubundnum opnunartíma þeirra.
Sjá opnunartíma sundlauga í Hafnarfirði
Hlökkum til að sjá ykkur í sundi!