Þau eru íþróttafólk Hafnarfjarðar 2025
Meistaraflokkur FH kvenna í knattspyrnu er afrekslið Hafnarfjarðar 2025, Þóra Kristín Jónsdóttir er íþróttakona Hafnarfjarðar 2025 og Leo Anthony Speight er íþróttakarl Hafnarfjarðar 2025. Aron Pálmarsson handknattleikskappi fékk heiðursverðulaun.
Athletes honoured and achievements of the year celebrated
The election for Hafnarfjörður's Sportswoman, Sportsman and Sports Team took place at the Strandgata sports hall today. Meistaraflokkur FH kvenna í knattspyrnu er afrekslið Hafnarfjarðar 2025, Þóra Kristín Jónsdóttir frá Haukum er íþróttakona Hafnarfjarðar 2025 og Leo Anthony Speight Taekwondo-bardagamaður er íþróttakarl Hafnarfjarðar 2025.
- Meistaraflokkur FH kvenna í knattspyrnu er afrekslið Hafnarfjarðar 2025
- Þóra Kristín Jónsdóttir er íþróttakona Hafnarfjarðar 2025
- Leo Anthony Speight er íþróttakarl Hafnarfjarðar 2025

Árlega stendur Hafnarfjarðarbær fyrir afhendingu viðurkenninga til íþróttafólks sem keppir með hafnfirskum liðum, Íslandsmeistara, hópa bikarmeistara, Norðurlandameistara, heimsmeistara og sérstakra afreka, ásamt vali á íþróttakonu, íþróttakarli og íþróttaliði Hafnarfjarðar. Hátíðin fór fram í íþróttahúsinu að Strandgötu í dag.
Árið 2025 var stórt ár hjá íþróttafólki Hafnarfjarðarkaupstaðar, en alls hlutu 507 einstaklingar, leikmenn og þjálfarar, Íslandsmeistaratitla á árinu. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn. Á hátíðinni var 10,8 milljónum úthlutað úr sjóði sem Rio Tinto á Íslandi, ÍBH og Hafnarfjarðarbær standa að og ætlað er að efla íþróttastarf fyrir yngri en 18 ára. Eftir afhendinguna hefur því samtals 24 milljónum króna verið afhendar í þetta verkefni á árinu 2025.
Meistaraflokkur FH kvenna í knattspyrnu er lið ársins
Meistaraflokkur kvenna FH í knattspyrnu er afrekslið ársins 2025. Liðið náði frábærum árangri á liðnu ári. Það komst í fyrsta skipti í sögu félagsins í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna þar sem liðið laut í lægra haldi fyrir Breiðablik 3-2 eftir æsispennandi framlengdan leik. Á Íslandsmótinu lék liðið 23 leiki með 15 sigrum, 3 jafnteflum og 5 töpum og lönduðu eins og áður sagði öðru sætinu í efstu deild kvenna, og tryggðu sér jafnframt sæti í Evrópukeppninni á næsta ári.
Lið FH var eitt af yngstu liðum Bestu deildar kvenna árið 2025 en stefna félagsins er að vera vettvangur fyrir þróun ungra uppaldra leikmanna og var liðið í sumar einkennandi fyrir það þar sem ungir efnilegir leikmenn skipuðu stóran part af liðinu í bland við þá eldri og reynslumeiri.
Ljóst er að árangur liðsins í sumar hefur sýnt að meistaraflokkur kvenna FH er orðið eitt af bestu liðum landsins í íslenskri kvennaknattspyrnu. Spilamennska liðsins vakti athygli fyrir mikla ákefð og skemmtilegan sóknarleik.
Einstaka leikmenn liðsins vöktu einnig athygli og var leikmaður FH, Thelma Karen Pálmadóttir, valinn efnilegasti leikmaður Íslandsmótsins auk þess sem að 3 leikmenn (Thelma Karen, Elísa Sigurjónsdóttir og Arna Eiríksdóttir), þar af tveir uppaldir, voru seldir út í atvinnumennsku á árinu, en það er í fyrsta skipti sem félagið nær að selja leikmenn kvennaliðsins erlendis.
Þóra Kristín Jónsdóttir er íþróttakona Hafnarfjarðar 2025
Körfuboltakonan Þóra Kristín leitt lið Hauka til deildarmeistara- og Íslandsmeistaratitils á árinu, og er auk þess lykilkona í íslenska landsliðinu þar sem hún er fyrirliði ásamt Söru Rún Hinriksdóttur. Á árinu var Þóra valin leikmaður ársins í úrvalsdeild kvenna sem og besti leikmaður úrslitakeppninnar þar sem Haukar hömpuðu titlinum. En það er afar sjaldgæft að sami leikmaðurinn sé valin besti leikmaður tímabilsins og svo leikmaður úrslitakeppninnar
Leo Anthony Speight er íþróttakarl Hafnarfjarðar 2025
Leo Anthony hefur um árabil verið okkar öflugasti Taekwondo-bardagamaður og verið kosinn Taekwondo-maður Íslands 5 sinnum. Hann var valinn til að keppa fyrir Íslands hönd á HM í Kína á árinu, er ríkjandi Íslandsmeistari og er margfaldur norðurlandameistari. Hann er fastamaður í Íslenska landsliðinu í bardaga og komst á pall með því á 5 mótum 2025 þangað til að meiðsli gerðu vart við sig á haustmánuðum. Leo var valinn í hóp Íslendingar sem fá styrk frá Ólympíusamhjálpinni fram að Ólympíuleikunum í Los Angeles 2028 og er í Ólympíuhóp ÍSÍ.
Aron Pálmarsson heiðraður sérstaklega
Aron Pálmarsson var heiðraður sérstaklega á viðurkenningarhátíðinni. Aron lagði handboltaskóla á hilluna í lok síðasta tímabils.
„Óhætt er að segja að Aron sé einn allra sigursælasti íþróttamaður sem Hafnarfjörður og Ísland hefur alið af sér, en það eru ekki aðeins afrek hans á vellinum sem hafa vakið athygli heldur hefur hann sannað sig sem afburðargóð fyrirmynd fyrir unga fólkið okkar, og í raun okkur öll,“ sagði Tryggvi Rafnsson kynnir á hátíðinni. „Íþrótta- og tómstundanefnd vill því nota tækifærið hér og nú og heiðra Aron fyrir hans framlag.“
Rakið var að á ferlinum hafi Aron unnið hvorki meira né minna en 34 stóra titla og þar af 32 á erlendri grundu. Aron hafi meðal annars orðið landsmeistari samtals 13 sinnum í fjórum löndum, hafi unnið Meistaradeild Evrópu í þrígang og orðið heimsmeistari félagsliða í þrígang. „Þá tók Aron 10 sinnum þátt í úrslitahelgi meistaradeildar Evrópu, oftar en nokkur annar handknattleiksmaður í sögunni. Aron vann bronsverðlaun með íslenska landsliðinu á EM árið 2010 og lék 182 landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði 692 mörk í landsliðstreyjunni.“
- Aron hóf ungur handknattleiksiðkun með FH og lék sína fyrstu leiki fyrir meistaraflokk félagsins aðeins 15 ára gamall. Árið 2009, þegar Aron var 19 ára gamall, gekk hann til liðs við þýska stórliðið THW Kiel og lék með því í sex ár eða til ársins 2015 þegar hann færði sig yfir til Veszprém í Ungverjalandi. Þaðan lá leiðin til spænska stórveldisins Barcelona í fjögur ár og svo Álaborgar í Danmörku í tvö ár áður en hann koma aftur heim í FH sumarið 2023. Með FH varð Aron bæði deildar- og Íslandsmeistari árið 2024 og var bæði valinn mikilvægasti leikmaður tímabilsins og besti leikmaður úrslitakeppninnar. Haustið 2024 samdi Aron óvænt aftur við Veszprém í Ungverjalandi og lék með liðinu sitt síðasta keppnistímabil og endaði ferilinn sem ungverskur meistari.
Eins og heyra má hefur Aron unnið ófáa titla á ferlinum, og auk þeirra hefur hann hlotið nokkur persónuleg verðlaun á ferlinum. Má þar nefna að hann hefur í tvígang verið valinn besti leikmaður Meistaradeild Evrópu og í fjórgang verið valinn handboltamaður ársins á Íslandi. Þá var hann valinn Íþróttamaður ársins hérlendis árið 2012. FH hefur einnig heiðrað sinn mann og veitti honum Gullmerki FH árið 2010 og titilinn Íþróttamaður FH árið 2024.
Hafnarfjarðarbær óskar öllu íþróttafólki Hafnarfjarðar innilega til hamingju með afrek ársins 2025!