The Tech Foundry

Tæknismiðjan, 1.hæð
nyskopunarsetur@hafnarfjordur.is
Miðvikudaga frá kl. 15:00 - 19:00

Tæknismiðjan er tilvalin fyrir upprennandi frumkvöðla sem klæja í puttana að prófa sig áfram í tækni og að feta sín fyrstu spor í nýsköpun. Ef þig langar að gera þína hugmynd að veruleika er tæknismiðjan tilvalin aðstaða til þess. Við erum með margskonar skipulagða dagskrá þar sem einstaklingar mega prófa sig áfram í listsköpun auk þess er opið fyrir hvern sem er að kíkja við og skapa.

Í tæknismiðjunni má finna tæki og tól til þess að vinna í hugmyndum sínum. Smiðjan er opin öllum, það kostar ekkert að koma til okkar og vinna í einni af fimmtán fartölvum sem eru á svæðinu, spjalla við starfsfólk eða bara vinna með blað og blýant. Á staðnum er efniviður sem hægt er að kaupa til notkunar, einnig er í boði að koma með eigin efnivið, en þá þarf einungis að borga notkunargjald vélarinnar. Endilega ráðfærið ykkur við starfsmenn nýsköpunarsetursins um viðeigandi efnisnotkun, gjaldskrá má einnig sjá hér.

Í Nýsköpunarsetrinu má finna tvær tegundir 3D prentara. Verð fyrir prentun fer eftir hversu mikið efni er notað, ráðlagt er að ráðfæra sig við starfmann Tæknismiðjunnar til þess að fá að vita hver munurinn er á prentun og tíma.

Gjaldskrá fer eftir efniskostnaði og tímakostnað vélarinnar sem er notuð.

Tímagjald fyrir afnot af prentaranum 500 kr.
Efnisgjald 25 kr. á gramm
Suggestion portal