
Tilraunasmiðjan er frábært rými fyrir listasinnaða einstaklinga og hópa í Hafnarfirði. Rýmið er hannað með fjölbreytileika í huga og gefur einstaklingum jafnt og stórum hópum færi á að koma og prófa sig áfram í myndlist; málun, teikningu og hönnun í gegnum námskeið og kennslu eða í frjálsu flæði.
Langar þig að vera með námskeið, vantar þig samastað til að læra nýja tækni eða endurheimsækja gömul listform? Í rýminu gefst þátttakendum tækifæri til að prófa nýja listmiðla, skapa óháð hæfni og þróa sína eigin listsköpun áfram í öruggu og skemmtilegu umhverfi.
Leigan er hófleg og fer eftir gjaldskrá hússins. Ef þú hefur áhuga, sendu okkur línu á nyskopunarsetur@hafnarfjordur.is