Tilnefning til hvatningarverðlauna MsH
Hvatningarverðlaun Markaðsstofu Hafnarfjarðar voru fyrst afhent árið 2016. Þau eru veitt fyrirtæki, félagi eða einstakling sem hefur lyft upp bæjaranda Hafnarfjarðar með starfsemi sinni og athöfnum.
Hvatningarverðlaun Markaðsstofu Hafnarfjarðar voru fyrst afhent árið 2016. Þau eru veitt fyrirtæki, félagi eða einstakling sem hefur lyft upp bæjaranda Hafnarfjarðar með starfsemi sinni og athöfnum. Litið er á verðlaunin sem þakklætisvott fyrir óeigingjarnt starf við að gera Hafnarfjörð að betra samfélagi.
Tilnefning fyrir 2020 og verðlaunaafhending
Nú er komið að því að aðildarfyrirtæki markaðsstofunnar fá að tilnefna til verðlaunanna fyrir árið 2020. Nauðsynlegt er að senda inn tilnefningu fyrir þann 1. febrúar næstkomandi með því að smella here. Tilkynnt verður um verðlaunahafa þann 25. febrúar en vegna sóttvarnaráðstafana verður viðburðurinn með breyttu sniði í ár.

Verðlaunahafar ársins 2019
Nánari upplýsingar um hvatningarverðlaunin