Sinfóníuhljómsveitin
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar tónlistarskólanna verða haldnir í Langholtskirkju á laugardaginn. Sinfóníuhljómsveitin er samstarfsverkefni fjögurra tónlistarskóla.
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar tónlistarskólanna verða haldnir í Langholtskirkju laugardaginn 30. janúar kl. 16:00. Einleikarar á píanó með hljómsveitinni eru Árni Halldórsson, Hugrún Britta Kjartansdóttir og Rebekka Friðriksdóttir sem eru öll nemendur í Tónskóla Sigursveins.
Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Á efnisskránni eru eftirtalin verk:
- Jón Ásgeirsson: Fornir dansar – úrval
- Dmitri Shostakovitsj: Píanókonsert nr. 2
- Robert Schumann: Sinfónía nr. 4
Samstarfsverkefni fjögurra tónlistarskóla
Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna er samstarfsverkefni 4 tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu, Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Tónlistarskóla Kópavogs, Tónlistarskóla Garðabæjar og Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. 80 ungir tónlistarnemar, flestir á grunn- og framhaldsskólaaldri, skipa hljómsveitina. Hljómsveitin æfir í Sölvhóli, sal Listaháskóla Íslands. Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna var stofnuð haustið 2004. Í janúarmánuði ár hvert hittast nemendur ásamt stjórnanda og raddþjálfurum og æfa tónleikadagskrá sem flutt er á tónleikum í lok mánaðarins. Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna veitir þeim sem komnir eru áleiðis í tónlistarnámi þjálfun í að leika í fullskipaðri hljómsveit og er hún mikilvægur vettvangur til þjálfunar í hljómsveitarleik undir handleiðslu viðurkenndra tónlistarmanna og stjórnenda. Sömuleiðis er framúrskarandi hljóðfæraleikurum úr hópi nemenda gefið tækifæri á að leika einleik með hljómsveitinni. Þá er á hverju ári íslenskt verk á efnisskrá hljómsveitarinnar.
Allar frekari upplýsingar um verkefnið og tónleikana veita Guðmundur Óli Gunnarsson í síma: 893 8252 og Kristín Stefánsdóttir í síma: 893 9178