Music schools shine in the Netnótan
Á Íslandi eru tæplega 90 tónlistarskólar starfandi með 15 þúsund nemendur. Flest allir þessir skólar taka þátt í Netnótunni, nýjum tónlistarþáttum, sem unnir eru í samstarfi við Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Samtaka tónlistarskólastjóra. Tónlistarskóli Hafnarfjarðar er einn þessarra skóla.
Á Íslandi eru tæplega 90 tónlistarskólar starfandi með 15 þúsund
nemendur. Flest allir þessir skólar taka þátt í Netnótunni, nýjum
tónlistarþáttum, sem unnir eru í samstarfi við Félag kennara og stjórnenda í
tónlistarskólum og Samtaka tónlistarskólastjóra. Tónlistarskóli Hafnarfjarðar er einn þessarra skóla. Sunnudagskvöldið 20. júní munu nemendur í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar láta ljós sitt skína í Netnótunni.
Grasrót tónlistarsköpunar á landinu
Frá árinu 2010 hefur Nótan, uppskeruhátíð tónlistarskóla landsins,
verið haldin árlega með pompi og prakt. Árið 2020 átti hátíðin 10 ára afmæli en
lítið varð úr hátíðarhöldum vegna Covid.
Í ljósi aðstæðna brugðust tónlistarskólar landsins við með síma og Ipada
að vopni og tóku upp eigin tónlistaratriði. Saman eru þessi myndbönd orðin að
Netnótunni, þriggja þátta sjónvarpsseríu sem sýnd verður á N4. Þar gefst kostur á að skyggnast inn í starfsemi tónlistarskólanna, grasrót tónlistarsköpunar í landinu.
Fyrsti þáttur fór í loftið 13. júní. Í þáttunum eru myndbönd sem hver þátttökuskóli útbjó heima í héraði
púslað saman og sér leikarinn Vilhjálmur Bragason um að kynna atriðin. Eins og sést í Netnótunni þá er starf tónlistarskólanna mjög fjölbreytt,
tónlistarnemendur eru á öllum aldri og á öllum stigum tónlistarnámsins. Myndböndin birtast á vefsíðu KÍ and FB síðu Nótunnar á sama tíma og hver
sjónvarpsþáttur er sýndur, auk þess sem þau verða aðgengileg á heimasíðu N4 og
í N4 safninu í Sjónvarpi Símans.
Nánari upplýsingar um Netnótuna veitir Sigrún Grendal, formaður Félags
kennara og stjórnenda í tónlistarskólum í síma 6945462