Trjágróður og skjólveggir við lóðamörk
Garðyrkjustjóri og umhverfis- og skipulagsþjónusta Hafnarfjarðar vilja minna bæjarbúa á nokkur atriði sem vert er að hafa í huga varðandi trjágróður við lóðamörk og byggingu grindverka og skjólveggja.
Garðyrkjustjóri og umhverfis- og skipulagsþjónusta Hafnarfjarðar vilja minna bæjarbúa á nokkur atriði sem vert er að hafa í huga varðandi trjágróður við lóðamörk og byggingu skjólveggja.
Hugum að gróðri að lóðamörkum
Trjágróður sem vex út fyrir lóðarmörk getur verið verið hamlandi og jafnvel skaðlegur fyrir gangandi, hjólandi eða akandi vegfarendur og getur skyggt á umferðarmerki, götuheiti og jafnvel lýsingu.
Í byggingarreglugerð grein 7.2.2. segir um tré og runna : „lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðamarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðamörk við götur, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.“
Fencing and screen walls
Um slíkar framkvæmdir gilda ákveðnar reglur sem vert er að kynna sér áður en farið er af stað.
Huga þarf að lóðamörkum hvort heldur sem er við lóð nágrannans eða að bæjarlandi. Heimilt er að reisa skjólvegg og girðingar allt að 1,8m að hæð sem eru ekki nær lóðarmörkum en 1,8m. Sækja þarf um heimild til byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar fari grindverk nær lóðarmörkum en hæð þess er. Einnig skal leggja fram til byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar samþykki nágranna/aðliggjandi lóðarhafa vegna grindverks á eða við lóðarmörk.
Við gerð grindverks og annarra skjólveggja eru íbúar einnig hvattir til að huga að því hvort slíkar framkvæmdir hafi mögulega áhrif á umferðaröryggi með skerðingu sjónrænna tenginga við götu og gangstétt.
On the website of the Infrastructure Agency (www.mannvirkjastofnun.is/The building regulations can be found under the 'Laws and Regulations' tab. Particular attention is drawn to section 2.3.5 for those considering works on their plot, which covers, amongst other things, on-site works, retaining walls, fences and garden sheds.
Umhverfis- og skipulagsþjónusta Hafnarfjarðar
Garðyrkjustjóri Hafnarfjarðar