Around 100 attend the PMTO parenting skills course annually.

News

Foreldrar þjálfast í að sjá það jákvæða í hegðun barna sinna með hugmyndafræði PMTO. Þau upplifa meiri samheldni í uppeldinu. PMTO-hugmyndafræðin er eitt fjölmargra verkfæra Hafnarfjarðarbæjar til að tryggja farsæld barna.

Samvinna og samheldni foreldra eykst

„Rannsóknir sýna að foreldrar sem hafa fengið PMTO þjónustu eru mjög ánægðir. Þeir styrkjast í uppeldishlutverki sínu og finna jákvæðar breytingar sem geta skipt sköpum fyrir framtíð barnsins og fjölskyldunnar,“ segir Kolbrún Sigþórsdóttir, verkefnisstjóri PMTO.

PMTO-fræðsla hjálpar foreldrum að styðja við jákvæða hegðun barna og takast á við krefjandi áskoranir. Meginmarkmiðið er að kenna foreldrum/forsjáraðilum að nota styðjandi uppeldisaðferðir til að bæta aðlögun, hegðun og líðan barna sinna og koma í veg fyrir þróun frekari vanda.

Hvað er PMTO?

PMTO foreldrafærni er gagnreynt meðferðarúrræði fyrir foreldra barna með samskipta- eða hegðunarerfiðleika sem hefur reynst afar vel hér á landi sem og um allan heim. PMTO stendur fyrir Parent Management Training – Oregon.

Hér í Hafnarfirði er boðið upp á PMTO-námskeið og einstaklingsmeðferð og fá rúmlega 100 foreldrar PMTO þjónustu á ári hverju auk þess að margir skólar njóta góðs af skólaútgáfu aðferðarinnar – SMT skólafærni.

PMTO-hugmyndafræðin er eitt fjölmargra verkfæra Hafnarfjarðarbæjar til að tryggja farsæld barna.

„Aukinn samstarfsvilji, betri samskipti, aukið öryggi og vellíðan barnanna vex. Einnig er algengt að samvinna og samheldni foreldra aukist,“ segir Kolbrún að sé árangur námskeiðanna.

Að meðaltali eru fimm PMTO foreldrafærninámskeið kennd á hverju ári og átta PMTO einstaklingsmeðferðir. Biðlisti á PMTO námskeiðin er enginn eins og staðan er í dag og má það þakka öflugum PMTO meðferðaraðilum sem sjá um fræðsluna.

Farsældarvikan í gangi

Farsældarvika stendur nú yfir á höfuðborgarsvæðinu. Markmiðið er að vekja athygli foreldra á breyttu vinnulagi sveitarfélaganna börnunum í hag. Nú starfa ólíkir sérfræðingar saman að því að tryggja börnunum réttu úrræðin hverju sinni.

PMTO foreldrafærni er fyrir foreldra/forsjáraðila barna á aldrinum 4 -12 ára. Sótt er um þessa þjónustu í gegnum leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar.

  • PMTO foreldranámskeið ( fyrsta og annars stigs úrræði). Námskeiðið er kennt einu sinni í viku í 8 skipti. Fjöldi þátttakenda í hverjum hópi eru 20.
  • PTC hópmeðferð (annars stigs úrræði en getur einnig verið á fyrsta og þriðja stigi) PTC sendur fyrir Parenting Through Change. Námskeiðið er kennt einu sinni í viku í 12 skipti í 1,5 klst. í senn. Foreldrar fá heimavinnu sem meðferðaraðilar fylgja eftir með vikulegum símtölum. Fjöldi þátttakenda í hverjum hópi eru 16.
  • PMTO einstaklingsmeðferð (þriðja stigs úrræði). Meðferðin fer fram á vinnutíma, einu sinni í viku í klukkustund í senn í 20 – 30 vikur. Foreldrar fá heimavinnu sem meðferðaraðilar fylgja eftir með vikulegum símtölum.

Suggestion portal