Youth Council with 11 recommendations for the town council

News

Fulltrúar í ungmennaráði Hafnarfjarðar lögðu 11 tillögur fyrir bæjarstjórn á fundi þeirra í dag þann 11. mars. Allar fara tillögurnar áfram til umræðu innan viðeigandi ráða.

Öllum tillögum vísað áfram til umræðu 

Þrettán fulltrúar í ungmennaráði Hafnarfjarðar lögðu 11 tillögur fyrir bæjarstjórn á fundi þeirra í dag þann 11. mars. Unga fólkið ræddi mikilvægi svefns og að skólar hæfust seinna, öllum nemendum í 9. og 10. bekk yrðu tryggðar tölvur og að mótuð yrði gervigreindarstefna fyrir skólastarf í Hafnarfirði, ásamt mörgum öðrum tillögum. Þau ræddu þeirra hjartans mál og reynslu og hvernig þau vilja sjá hinar ýmsu úrbætur.

Þau stigu í pontu eitt af öðru. Bæjarfulltrúarnir hlustuðu af athygli. Valdimar Víðisson bæjarstjóri lagði áherslu á að hlustað væri á börn. Hver bæjarfulltrúinn á fætur öðrum hvatti unga fólkið áfram, þakkaði fyrir tillögurnar. Samtallið var gott og hvetjandi og þau ræddu málin.

Svona hljómuðu tillögurnar. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til:
  1. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að sett verði á fót markviss og
    samræmd fræðsla um svefn og næringu fyrir öll ungmenni í Hafnarfirði, með
    það að markmiði að bæta líðan og styðja við heilbrigðan lífsstíl.
  2. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að öllum nemendum í 9. og 10. bekk í
    grunnskólum bæjarins verði tryggður aðgangur að fartölvum til reglubundinnar
    notkunar í námi.
  3. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til tillögu um mótun gervigreindarstefnu
    fyrir skólastarf í Hafnarfirði.
  4. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að grunnskólar í bænum samræmi
    upphaf skóladags og færi hann til seinna á morgnanna, með það að markmiði
    að bæta líðan, heilsu og námsárangur nemenda.
  5. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að grunnskólar í bænum leggi aukna
    áherslu á verklegt nám í kennslu, með það að markmiði að efla fjölbreytileika
    náms.
  6. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að dregið verði úr skólasundi í
    grunnskólum og að sundkennsla verði kynjaskipt.
  7. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að sett verði á fót samræmd fræðsla
    um geðheilsu fyrir öll ungmenni í bænum með áherslu á forvarnir.
  8. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að viðbragðsáætlanir gegn einelti í
    grunnskólum bæjarins verði endurskoðaðar og samræmdar til að tryggja skýr
    og árangursrík úrræði fyrir börn og ungmenni í Hafnarfirði.
  9. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að nemendum verði tryggður formlegur
    atkvæðaréttur í ákvörðunum sem varða skólalíf, til að efla lýðræðislega þátttöku
    ungmenna.
  10. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að fjárveitingar til grunnskóla verði
    auknar til að bæta aðstöðu og búnað fyrir nemendur.
  11. Ungmennaráð Hafnarfjarðar leggur til að námsefni og námskrárvinnu
    grunnskólanna verði samræmd í ríkari mæli til að tryggja jafnræði nemenda.

Ungmennaráðið mikilvægt

Ungmennaráð Hafnarfjarðar er vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 13-18 ára. Áhersla er lögð á þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum ásamt því að koma skoðunum ungs fólks til réttra aðila innan stjórnkerfisins.

Í Ungmennaráði sitja tveir fulltrúar úr hverjum grunnskóla í Hafnarfirði, þrír úr hverjum framhaldsskóla í Hafnarfirði og þrír fulltrúar sem eru valdir í gegnum ungliðastarfið.

Starfsmenn ráðsins eru tveir og starfa þeir fyrst og fremst sem ráðgjafar og hafa því ekki áhrif á starfsemi þess.

Markmið ráðsins að skapa vettvang og leiðir fyrir þá sem eru yngri en 18 ára til að koma skoðunum sínum og tillögum á framfæri við viðeigandi aðila. Þátttaka ungs fólks er mikilvæg til þess að bæta þjónustu og aðstæður þeirra. Á það fyrst og fremst við um málefni sem viðkemur ungu fólki á einn eða annan hátt og þau þekkja af eigin raun. Þar má nefna skólastarf, tómstundastarf og skipulag nánasta umhverfis.

Suggestion portal