UNICEF kallar eftir teikningum frá börnum og ungmennum
Í tilefni af alþjóðadegi barna, sem er 20. nóvember, kallar UNICEF á Íslandi eftir teikningum frá börnum og ungmennum yngri en 24 ára þar sem viðfangsefnið er að ímynda sér þann heim sem vilji er fyrir að byggja fyrir börn eftir COVID-19 ef börn og ungmenni fengju að ráða.
Ert þú skapandi ungmenni?

Efni myndanna er frjálst en sem dæmi um viðfangsefni gæti verið:
- Ímyndaðu þér grænni og sjálfbærari heim
- Ímyndaðu þér framtíð menntunar
- Ímyndaðu þér framtíð án mismununar
- Ímyndaðu þér framtíð þar sem öllum börnum líður vel
UNICEF mun birta valdar myndir frá börnum um allan heim undir myllumerkinu #voicesofyouth dagana fyrir 20. nóvember. UNICEF á Íslandi mun safna saman öllum myndum sem berast hér á landi og birta á samfélagsmiðlum samtakanna og til stendur að setja upp stafræna sýningu á völdum myndum sem opnar á alþjóðadegi barna.
Allir áhugasamir eru beðnir um að senda sína mynd með örstuttri útskýringu á netfangið: steinunn@unicef.is eða í pósti á skrifstofu UNICEF á Íslandi, Laugavegi 77, 101 Reykjavík. Myndirnar þurfa að berast fyrir 15. nóvember.