Early voting for local elections
Null
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnarkosninga 26. maí fer
fram í Smáralind frá og með næsta föstudegi, 11. maí. Þar verður opið alla daga
frá klukkan 10:00 til 22:00.
Opið verður á
kjördag frá klukkan 10:00 til 22:00 fyrir kjósendur sem eru á kjörskrá utan
höfuðborgarsvæðisins. Í tilkynningu frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu
segir að aðeins sé hægt að senda atkvæði kjósenda sem ekki eru með lögheimili
á höfuðborgarsvæðinu með pósti í sveitarstjórnarkosningum. Þeir
kjósendur sem eru á kjörskrá utan höfuðborgarsvæðisins eru hvattir
til að koma í fyrra lagi að kjósa ef þeir ætla að kjósa utan kjörfundar
hjá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu, það er fyrir hvítasunnu.
Að öðrum kosti sé hætta á að atkvæðið berist yfirkjörstjórn í viðkomandi sveitarfélagi
of seint.
Kjósendur sem
eru með lögheimili í sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu, Reykjavík,
Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Kjósarhreppi geta
komið hvenær sem er að kjósa utan kjörfundar fram að kjördegi. Atkvæði þeirra
fara í kjörkassa viðkomandi sveitarfélags.
Atkvæðagreiðsla
utan kjörfundar, dvalar- og hjúkrunarheimilum verður á eftirfarandi tímum:
Sólvangur,
Hafnarfirði, föstudaginn 18. maí, kl. 14:30-16:00.
Hrafnista Hafnarfirði,
föstudaginn 18. maí, kl. 13:30- 17:30.