Vegna umræðu um mötuneyti í Áslandsskóla

News

Á fyrsta fundi nýs fræðsluráðs, þann 26. júní 2018, var tekið fyrir bréf frá umboðsmanni barna varðandi mötuneyti Áslandsskóla og það fyrirkomulag að nemendur í mataráskrift matist í öðru rými en nemendur sem koma með nesti að heiman. Fræðslustjóra Hafnarfjarðarbæjar var á fundinum falið að fylgja bréfinu eftir sbr. bókun. Afrit af bréfi var birt með bókun fundar.

Á fyrsta fundi nýs fræðsluráðs, þann 26. júní 2018, var
tekið fyrir bréf frá umboðsmanni barna varðandi mötuneyti Áslandsskóla og það
fyrirkomulag að nemendur í mataráskrift matist í öðru rými en nemendur sem koma
með nesti að heiman. Fræðslustjóra Hafnarfjarðarbæjar var á fundinum falið að
fylgja bréfinu eftir sbr. bókun. Afrit af bréfi var birt með bókun fundar.

13.
1806177 – Umboðsmaður barna, erindi

Erindi umboðsmanns
barna um aðstöðu nemenda Áslandsskóla í matsal grunnskólans.

Fræðslustjóra falið að
fylgja erindi umboðsmanns barna eftir. Fræðsluráð leggur áherslu á og að
stjórnendur Áslandsskóla taki til endurskoðunar aðstöðu nemenda í matarhléum
frá og með nýju skólaári með það fyrir augum að tryggja öryggi, svigrúm til
samveru og tækifæri til félagslegar samskipta og tengslamyndunar í matarhléum
sem og öðrum stundum innan skóladagsins.

Bréf umboðsmanns barna barst til Hafnarfjarðarbæjar í upphafi á sumarfríi hjá
grunnskólum Hafnarfjarðar. Rétt er að taka fram að í bréfinu frá Umboðsmanni barna
er ekki óskað eftir formlegu svari við erindinu og fer erindið því líkt og
önnur erindi í eðlilegan farveg innanhúss. Bréfið var tekið fyrir á fyrsta
fundi nýs fræðsluráðs í lok júní og því fylgt eftir af fræðslustjóra í ágúst að
afloknu sumarfríi. Umboðsmaður barna og fræðslustjóri hafa á tímabilinu hist á
fundi og átt símtöl þar sem málið var m.a. rætt og skilningurinn sá að allir
hlutaðeigandi væri meðvitaðir um stöðu mála. Þróunarfulltrúi grunnskóla hefur
einnig átt í samskiptum við Umboðsmann barna og fleiri starfsmenn embættisins
vegna málsins. Á næstu dögum mun nýtt skólaráð fyrir Áslandsskóla vera skipað
en skipað er í skólaráð í upphafi hvers skólaárs. Skipun hefur dregist þetta
árið vegna ytri úttektar á starfsemi skólans. Skólastjóri Áslandsskóla vinnur
að því í samráði við skólaráð skólans, sem skipað er nemendum, foreldrum og
starfsmönnum, að endurmeta núverandi fyrirkomulag í mötuneyti nemenda og koma
með tillögur að breytingum. Um leið og ákvörðun skólaráðs liggur fyrir verður
erindi Umboðsmanns barna formlega afgreitt í fræðsluráði. 

Suggestion portal