Velheppnaður starfsdagur dagforeldra
Að aðalfundi loknum sóttu
dagforeldrar fræðsluerindi í boði Hafnarfjarðarbæjar um stefnu bæjarins um læsi
og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar, sem talmeinafræðingarnir Ásthildur
Bj. Snorradóttir og Bjartey Sigurðardóttir sáu um.
Föstudaginn 6. mars voru dagforeldrar í Hafnarfirði með starfsdag. Dagurinn var fullskipaður og byrjaði kl. 08:30 á aðalfundi. Aðalheiður Runólfsdóttir var kosinn formaður og til vara Sigríður Júlíusdóttir. Aðrir í stjórn voru kosnar Eyrún Gísladóttir gjaldkeri og Þóra Jónína Hjálmarsdóttir og Steinþóra Þorsteinsdóttir meðstjórnendur.
Að aðalfundi loknum sóttu dagforeldrar fræðsluerindi í boði Hafnarfjarðarbæjar um stefnu bæjarins um læsi og mikilvægi snemmtækrar íhlutunar, sem talmeinafræðingarnir Ásthildur Bj. Snorradóttir og Bjartey Sigurðardóttir sáu um.
Eftir hádegi sátu dagforeldrarnir fræðsluerindi um brunavarnir, einnig í boði Hafnarfjarðarbæjar og í framhaldi tóku þeir þátt í verklegri kennslu hjá slökkviliðinu undir dyggri stjórn Jóns Péturssonar, sérfræðings frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.