Vetrarfrí 24. og 25. október. Komdu út að leika!
Vetrarfrí er í grunnskólum, tónlistarskóla og að hluta til í leikskólum Hafnarfjarðar með tilkomu skráningardaga fimmtudaginn 24. október og föstudaginn 25. október nk. Af því tilefni er meðal annars frítt í sund fyrir börn og fullorðna í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar þessa tvo daga.
Vetrarfrí í vikulok
Ýmsir skemmtilegir viðburðir verða fyrir alla fjölskylduna í vetrarfríi grunnskólanna, tónlistarskóla og að hluta til í leikskólum Hafnarfjarðar með tilkomu skráningardaga, dagana 24. og 25. október. Meðal annars verður frítt í sund fyrir börn og fullorðna þessa tvo daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar. Við bendum á að frístund er lokuð þessa tvo vetrarfrísdaga. Þessir tveir dagar eru einnig skráningardagar í leikskólanum og minnum við foreldra á það.
Fimmtudagur 24. október
- Öll fjölskyldan fær FRÍTT Í SUND frá kl. 6:30-22 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og í Sundhöllinni til kl. 21
Port city
- Frjáls listsköpun – teikning og litir. Listasmiðja fyrir grunnskólabörn, kl. 13:00-15:00. Boðið verður upp á létta stemningu þar sem þátttakendur smiðjunnar geta komið saman og teiknað í samvinnu hvert við annað. Unnið verður sameiginlegt listaverk, með spunakenndum hætti, og myndast þannig ein stór teikning. Leiðbeinandi er Sigurður Ámundason.
Hafnarfjörður Library
- Fjölskyldusmiðja fyrir 6 ára og eldri – 15:00 – 17:00. List, náttúra og sköpunargleði blandast saman í þessari skemmtilegu smiðju fyrir hressa krakka og foreldra. Þema dagsins eru Skrímsli og forynjur.
- Skynjunarleiksmiðja Plánetu – 15:00 – 16:30. Við bjóðum litlum krílum að koma í þroskandi og örvandi samverustund, þar sem þau geta leikið og kannað heiminn á litríkan og skemmtilegan máta með öðrum börnum.
Hafnarfjörður Museum of Local History
- Ratleikur í Pakkhúsinu – 11:00 – 15:00. Upplagt fyrir fjölskyldur að heimsækja safnið með ratleikinn sem leiðarvísi.
- Barnaleiðsögn í Pakkhúsinu – 12:00.
Nýsköpunarsetrið við Lækinn 17:00 – 22:00
- Spunaspil fyrir 15-16 ára! Húsið opnar klukkan 17:00 og hefst spilamennskan klukkan 18:00. Öll velkomin.
Föstudagur 25. október
- Öll fjölskyldan fær FRÍTT Í SUND frá kl. 6:30-20 í Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug og í Sundhöllinni til kl. 21
Port city
- Hrekkjavöku-origami. Listasmiðja fyrir grunnskólabörn, kl. 13:00-15:00. Í smiðjunni fá þátttakendur að kynnast listinni að búa til origami, eða pappírsbrot, að japanskri hefð. Þá munu gestir læra að brjóta og móta pappírinn svo að í ferlinu verða til skuggalegar skreytingar í anda hrekkjavöku. Leiðbeinendur eru Yasuka Kawakami og Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir. Leiðbeinendur smiðjunnar tala íslensku, ensku og japönsku.
Hafnarfjörður Library
- 13:00 – Bíósýning fyrir yngri hópinn í fjölnotasal
- 13:00-17:00 – Ratleikur og sjálfstýrandi smiðja á barnadeild fyrir krakka á öllum aldri
Hafnarfjörður Museum of Local History
- Ratleikur í Pakkhúsinu – 11:00 – 15:00. Upplagt fyrir fjölskyldur að heimsækja safnið með ratleikinn sem leiðarvísi.
Laugardagur 26. október
Hafnarfjörður Library
- 13:00-16:00 – Ratleikur og sjálfstýrandi smiðja á barnadeild fyrir krakka á öllum aldri
Að auki hefur Heilsubærinn Hafnarfjörður tekið saman heilt stafróf af hugmyndum að fjölmörgu spennandi og skemmtilegu sem fólk getur tekið sér fyrir hendur heimavið eða í næsta nágrenni. Þar er hægt að nálgast fullt af hugmyndum að einhverju nýju og öðruvísi að gera einn eða með fjölskyldunni. Hér á vefnum er einnig hægt að nálgast lista yfir sérstæð náttúrufyrirbrigði og áhugaverða staði og fjölda göngu- og hjólaleiða sem liggja um Hafnarfjörð.
The health town of Hafnarfjörður býður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt skemmtilegu bingói í vetrarfríinu en þar má finna góðar hugmyndir að skemmtilegri og fjölbreyttri afþreyingu um allan Hafnarfjörð fyrir alla fjölskylduna.
The health town of Hafnarfjörður wishes its residents and friends a happy winter holiday!