Winter holiday in Hafnarfjörður

News

Swimming is free during the primary school winter holiday, and the museums are offering an exciting programme for primary school children and their families.

Vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar mánudaginn og þriðjudaginn 22.-23. febrúar og víðar um land og sameiginlegur skipulagsdagur 24. febrúar. Af því tilefni er m.a. frítt í sund fyrir börn og fullorðna þessa daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar.

The health town of Hafnarfjörður býður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt skemmtilegu bingói í vetrarfríinu en þar eru hugmyndir að góðri afþreyingu fyrir alla fjölskylduna og litli ratleikur Hafnarfjarðar 2021 leiðir þátttakendur á 15 nýja áhugaverða staði sem m.a. vekja athygli á sögu bæjarins. Þá hefur Brettafélag Hafnarfjarðar sett upp æfingabraut úr plasti í brekkuna á Víðistaðatúni.

Grunnskólabörn eru boðin sérstaklega velkomin í Hafnarfjörður Library í vetrarfríinu, en þar verður staðið fyrir ratleik um safnið, sem hefur nýlega gengist undir yfirhalningu, svo það er ekki seinna vænna en að læra á nýja bókavölundarhúsið! Vinningar eru að sjálfsögðu í boði fyrir skörp lið sem ná að klára, og dregið verður úr innsendum svörum miðvikudaginn 24. febrúar. Leikar hefjast á laugardeginum 20. febrúar. Mánudaginn 22. febrúar fer einnig upp verkefnið ‘Bókakjóllinn’, þar sem gestum og gangandi gefst færi á að deila með okkur sínum uppáhaldsbókum, ljóðum, höfundum, tilvitnunum, ja, eða bara hverju sem er, og hanna með okkur tískuundur sem verður aðgengilegt og til sýnis á fyrstu hæð.

Á Hafnarfjörður Museum of Local History verður hægt að taka þátt í skemmtilegum og fróðlegum ratleik fyrir fjölskylduna sem leiðir gesti um safnið og Port city býður grunnskólabörnum að koma og taka þátt í skemmtilegum og skapandi listasmiðjum á vegum safnsins.

Laugardagur 20. febrúar

  • Ratleikur hefst um Bókasafn Hafnarfjarðar kl. 11. Opið til kl. 15.
  • Byggðasafn Hafnarfjarðar opið kl. 11-17. Ratleikur og áhugaverðar sýningar.
  • Sýningarnar Hafnarfjörður, verk úr safneign, og Það sem fyrir augu ber, sýning á verkum Gunnars Hjaltasonar, í Hafnarborg. Opið kl. 12-17.

Sunnudagur 21. febrúar

  • Byggðasafn Hafnarfjarðar opið 11-17. Ratleikur og áhugaverðar sýningar.
  • Sýningarnar Hafnarfjörður, verk úr safneign, og Það sem fyrir augu ber, sýning á verkum Gunnars Hjaltasonar, í Hafnarborg. Opið kl. 12-17.

Mánudagur 22. febrúar

  • Kl. 6:30-22 FRÍTT Í SUND í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll (til kl. 21)
  • Bókakjóllinn fer upp á Bókasafni Hafnarfjarðar kl. 10
  • Borðspilapop-up í fjölnotasal Bókasafns Hafnarfjarðar
  • Byggðasafn Hafnarfjarðar opið kl. 11-17. Ratleikur og áhugaverðar sýningar.
  • Prent-listasmiðja í Hafnarborg kl. 13-15. Notast verður við gel-plötur við prentun grafíkverka.

Þriðjudagur 23. febrúar

  • Kl. 6:30-22 FRÍTT Í SUND í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll (til kl. 21)
  • Skúlptúragerð í Hafnarborg kl. 13-15. Stór og smá, þrívíð listaverk verða til úr fjölbreyttum efnivið.
  • Sögustund fyrir yngri krakka – Bókasafn Hafnarfjarðar – 14-14:30
  • Sögustund fyrir eldri krakka – Bókasafn Hafnarfjarðar kl. 15-15:30
  • Tónleikar með Fjöru – Bókasafn Hafnarfjarðar kl. 17-17:30
  • Byggðasafn Hafnarfjarðar opið 11-17. Ratleikur og áhugaverðar sýningar.

Miðvikudagur 24. febrúar

  • Kl. 6:30-22 FRÍTT Í SUND í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll (til kl. 21)
  • Krakkaljóð og kósí (Komið með teppi!) – Bókasafn Hafnarfjarðar kl. 12-13
  • Dregið í ratleik – Bókasafn Hafnarfjarðar kl. 14

Þá hefur heilsubærinn Hafnarfjörður tekið saman heilt stafróf af hugmyndum að fjölmörgu spennandi og skemmtilegu sem fólk getur tekið sér fyrir hendur heimavið eða í næsta nágrenni. Þar er hægt að nálgast fullt af hugmyndum að einhverju nýju og öðruvísi að gera einn eða með fjölskyldunni. Hér á vefnum er einnig hægt að nálgast lista yfir sérstæð náttúrufyrirbrigði og áhugaverða staði og fjölda göngu- og hjólaleiða sem liggja um Hafnarfjörð.

The health town of Hafnarfjörður wishes its residents and friends a happy winter holiday!

Suggestion portal