Winter holidays in Hafnarfjörður – ideas for good entertainment
Sund, bingó, ratleikur, bíó, listasmiðjur og fleira skemmtilegt! Vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar dagana 14.- og 15. október. Af því tilefni er m.a. frítt í sund fyrir börn og fullorðna þessa tvo daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar. Hér koma nokkrar hugmyndir að góðri skemmtun frá Heilsubænum Hafnarfirði.
Sund, bingó, ratleikur, bíó, listasmiðjur og fleira skemmtilegt!
Vetrarfrí er í grunnskólum Hafnarfjarðar í vikulok; fimmtudaginn 14. október og föstudaginn 15. október. Af því tilefni er m.a. frítt í sund fyrir börn og fullorðna þessa tvo daga í Ásvallalaug, Suðurbæjarlaug og Sundhöll Hafnarfjarðar.
The health town of Hafnarfjörður býður börnum og fjölskyldum þeirra að taka þátt skemmtilegu bingói í vetrarfríinu en þar má finna góðar hugmyndir að skemmtilegri og fjölbreyttri afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Litli ratleikur Hafnarfjarðar 2021 leiðir svo þátttakendur á 15 áhugaverða staði sem m.a. vekja athygli á sögu bæjarins.
Grunnskólabörn eru boðin velkomin í Hafnarfjörður Library í vetrarfríinu, en þar verður m.a. afrakstur samvinnu frístundaheimilanna og bókasafnsins, Nærbuxnaverksmiðjan, til sýnis í fjölnotasal. Á Hafnarfjörður Museum of Local History verður hægt að taka þátt í skemmtilegum og fróðlegum ratleik fyrir fjölskylduna sem leiðir gesti um safnið og Port city býður grunnskólabörnum að koma og taka þátt í skemmtilegum og skapandi listasmiðjum.
Miðvikudagur 13. október
- Stuttmyndir og bíó í Bæjarbíói – frítt fyrir alla
- Nærbuxnaverksmiðjan – afrakstur samvinnu frístundaheimilanna og bókasafnsins á Bóka- og bíóhátíð barnanna til sýningar í fjölnotasal.
Fimmtudagur 14. október
- FREE SWIMMING from 6:30 a.m. to 10 p.m. at Ásvallalaug and Suðurbæjarlaug, and at the Swimming Hall until 9 p.m.
- Ratleikur fyrir börnin og barnaleiðsögn um Byggðasafn Hafnarfjarðar kl. 13. Opið 11-15
- Sýningin Samfélag skynjandi vera í Hafnarborg. Opið 12-17
- Listasmiðja í umsjá Þórdísar Jóhannesdóttur frá kl. 13-15 í Hafnarborg. Unnar verða klippimyndir og sprettibækur (pop-up bækur) þar sem hús, híbýli og verur öðlast líf á blaðsíðum bóka
- D&D fyrir byrjendur á Bókasafni Hafnarfjarðar – skráning nauðsynleg (uppbókað)
- Nærbuxnaverksmiðjan – afrakstur samvinnu frístundaheimilanna og bókasafnsins á Bóka- og bíóhátíð barnanna til sýningar í fjölnotasal
Föstudagur 15. október
- FREE SWIMMING from 6:30 a.m. to 10 p.m. at Ásvallalaug and Suðurbæjarlaug, and at the Swimming Hall until 9 p.m.
- Ratleikur fyrir börnin og áhugaverðar sýningar á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Opið 11-15
- Listasmiðja í umsjá Karólínu Einarsdóttur frá kl. 13-15 í Hafnarborg. Hugtakið „skynjandi verur“ er skoðað út frá sjónarhóli barna. Þátttakendur fá tækifæri til að búa til litlar verur úr leir sem skynja heiminn ólíkt okkur mannfólkinu
- Fjölskyldustund á barnadeild Bókasafns Hafnarfjarðar – sögustund kl. 13
- Nærbuxnaverksmiðjan – afrakstur samvinnu frístundaheimilanna og bókasafnsins á Bóka- og bíóhátíð barnanna til sýningar í fjölnotasal
Laugardagur 16. október
- Ratleikur fyrir börnin og áhugaverðar sýningar á Byggðasafni Hafnarfjarðar. Opið 11-17
- Sýningin Samfélag skynjandi vera í Hafnarborg. Opið 12-17
- Nærbuxnaverksmiðjan – afrakstur samvinnu frístundaheimilanna og bókasafnsins á Bóka- og bíóhátíð barnanna til sýningar í fjölnotasal
Sunnudagur 17. október
- Byggðasafn Hafnarfjarðar opið 11-17. Ratleikur og áhugaverðar sýningar.
- Sýningin Samfélag skynjandi vera í Hafnarborg. Opið kl. 12-17.
Þá hefur heilsubærinn Hafnarfjörður tekið saman heilt stafróf af hugmyndum að fjölmörgu spennandi og skemmtilegu sem hægt er að taka sér fyrir hendur heimavið eða í næsta nágrenni. Þar má nálgast fullt af hugmyndum að einhverju nýju og öðruvísi til að gera einn eða með fjölskyldunni. Hér á vefnum er einnig hægt að nálgast lista yfir sérstæð náttúrufyrirbrigði og áhugaverða staði og fjölda göngu- og hjólaleiða sem liggja um Hafnarfjörð. Á kortavef bæjarins er svo að finna yfirlit yfir alla boltavelli, leikvelli og ærslabelgi.
The health town of Hafnarfjörður wishes its residents and friends a happy winter holiday!