Vetrarfríið hefst á fimmtudag
Vetrarfrí er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fimmtudaginn 19. febrúar og föstudaginn 20. febrúar. Mánudaginn 23. febrúar er síðan sameiginlegur skipulagsdagur leik- og grunnskóla.
Vetrarfríið hefst á fimmtudag
Vetrarfrí. Uppáhaldstími margra. Já, tíminn rennur nú upp síðar í vikunni. Vetrarfríið er í grunnskólum og Tónlistarskóla Hafnarfjarðar fimmtudaginn 19. febrúar og föstudaginn 20. febrúar. Mánudaginn 23. febrúar er síðan sameiginlegur skipulagsdagur leik- og grunnskóla.
Mörg fara á flakk. Önnur njóta þess að vera heima. Og þá er hægt að nýta frábæru söfnin okkar og sundlaugar hér í heilsubænum Hafnarfirði. Fara á opið hús hjá Bandingtonfélaginu – já, og fleira til.
Frítt á alla viðburði í vetrarfríinu í Hafnarfirði – Frítt allan daginn í Ásvallalaug og Sundhöll Hafnarfjarðar. En hafið í huga:
- Suðurbæjarlaug verður lokuð fimmtudaginn 19. febrúar vegna viðhalds. Þá verður skipt um rafmagnstöflu í lauginni.
- Ásvallalaug verður lokuð föstudaginn 20. febrúar vegna viðhalds. Þá verða sigi og gangar málaðir.
En það verður stuð í laugunum. Water polo verða í Ásvallalaug frá kl. 14 – 16 á fimtudag. Þá er tilvalið að koma og prófa að hlaupa um inni í bolta á vatni! Svo færist stuðið í Suðurbæjarlaug frá kl. 13 – 16 á föstudag. Þá fer sveppurinn í gang. Spil, boltar og núðlur í sveppnum og snáknum!
Já, dagskráin í Vetrarfríinu í Hafnarfirði er hressileg. Blómagerð verður í Hafnarborg á fimmudag. Þar verður einnig Skrípó-vinnustofa á föstudag og Pókemonsmiðja á bókasafninu. Á mánudag verður föndurstund á bókasafninu og sjónaukasmiðja á byggðasafninu.
Já, það er hægt að njóta samveru og góðra stunda í Hafnarfirði í Vetrarfríinu.