Winter Festival 2026 – get inspired to plan your programme
There's plenty on offer at the 2026 Winter Festival. Have a look at the programme and get some inspiration for your plans. That way, you're guaranteed a brilliant weekend.
Vetrarhátíð í Hafnarfirði
Hvernig er best að njóta Vetrarhátíðar í Hafnarfirði? Margt er í boði; kvöldsund, tónlistarbingó, önnur frábær tónlist, fyrirlestrar og smiðjur. Hér eru tvennar tillögur til að einfalda líf ykkar sem vitið ekkert hvað á að velja úr þessum konfektmolum!
Plan A
Föstudagskvöld á Safnanótt
- 19:00 í Hafnarborg. Tónaflóð – tónheilun með Völu Gestsdóttur
Hlaupa svo yfir á byggðasafnið…
- 20:00 á Byggðasafninu. Bryndís Björgvinsdóttir þjóðfræðingur heldur erindið: Álfabyggðir og bannhelgi í Hafnarfirði: Tengsl hjátrúar við náttúrusýn.
Fara svo beint í Sívertsenhúsið
- Föstudagur kl.18.00- 22:00. Annríki þjóðbúningar og skart sýna baðstofuverkin.
Laugardagur á Sundlauganótt
- Kl. 17 – mætt í Ásvallalaug. Frítt og vatnaboltar í stóru lauginni.
Úr sundi í sund! Og njóta sundlauganæturinnar í botn.
- Kl. 19 í Suðurbæjarlaug. Tónlistarbingó – bingó og tónlist í eina sæng!
Sunnudagssíðdegi
- Milli kl. 18-22 í Hjarta Hafnarfjarðar. Hafnarfjarðarkirkja, Hásalir og Tónlistarskóli Hafnarfjarðar lýst upp með fallegum litum. Frábært tækifæri fyrir ísbíltúr.
Plan B
Föstudagskvöld á Safnanótt
- Kl. 18 í Pakkhúsinu. Sjónaukasmiðja, þar sem hægt er að föndra sinn eiginn sjónauka.
- Kl. 18:30 í Pakkhúsinu. Nota tækifærið og hlusta á Skátana spila vel valin lög
- Kl. 19:30 á Bókasafninu. Njóta meiri tónlistar en hljómsveitin LEA spilar þar
- Kl. 20 við Fjarðarkaup. Ná 15 mínútna ljósmyndasýningu Fókus, félagi áhugaljósmyndara, á Led-skiltinu við Fjarðarkaup. Sýningin er á klukkustundarfresti.
Laugardagur á Sundlauganótt
- Svamla í Suðurbæjarlaug milli kl. 18-22.
Sunnudagssíðdegi
Kl. 18-22 í hjarta Hafnarfjarðar
- Nú, rétt eins og í plani A – vert að fara á rúntinn og njóta þess að sjá Hafnarfjarðarkirkju, Hásali og Tónlistarskólann lýstan með litadýrð nú í skammdeginu.
Já, það er margt í boði.
Skoðaðu alla dagskrána hér í Hafnarfirði á Vetrarhátíð 2026. Vetrarhátíð er haldin dagana 5.–8. febrúar. Vetrarhátíðin er í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Fjöldi listamanna tekur þátt í 150 viðburðum og skapa einstaka stemningu á höfuðborgarsvæðinu.
Frítt er á alla viðburði.